Sport

Caitlyn Jenner segir það ósanngjarnt ef transkonur fái að keppa við konur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Caitlyn Jenner vill verða ríkisstjóri í Kaliforníu.
Caitlyn Jenner vill verða ríkisstjóri í Kaliforníu. EPA-EFE/NINA PROMMER

Caitlyn Jenner talar gegn þátttöku transkvenna í íþróttum kvenna í bandarískum háskólum í nýju viðtali.

Caitlyn Jenner er fyrrum Ólympíumeistari í tugþraut karla en hún kom út sem transkona árið 2015. Hún er þessa dagana að bjóða sig fram til ríkisstjóra Kaliforníu og veitti TMZ sérstakt viðtal um helgina.

Caitlyn Jenner hét Bruce Jenner þegar hann vann Ólympíugull á leikunum í Montreal í Kanada árið 1976. Hún mætti ræddi við blaðamann TMZ og sagði þar frá skoðun sinni á keppni transkvenna í íþróttum.

Jenner segir þetta vera spurningu um sanngirni.

„Þessi vegna er ég á móti því að strákar sem urðu transtelpur fái að keppa í kvennaíþróttum í skólum. Það er bara ekki sanngjarnt. Við þurfum að verja stelpur sem eru að keppa í íþróttum í okkar skólum,“ sagði Caitlyn Jenner í stuttu viðtali sem var tekið á bílastæði í Malibu.

Fimm fylki hafa samþykkt lög sem takmarka þátttöku transfólks í íþróttum eða möguleika þeirra til að fá ákveðna læknisþjónustu.

Þetta var í fyrsta sinn sem Caitlyn Jenner tjáir sig um þetta mál síðan hún bauð sig fram til ríkisstjóra Kaliforníufylkis.

Hin 71 árs gamla Caitlyn Jenner er Repúblikani og studdi Donald Trump í forsetakosningunum 2016. Hún gagnrýndi seinna Trump fyrir ákvarðanir hans á kostnað transfólks. Hún sjálf hefur verið gagnrýnd af transfólki fyrir að tala ekki þeirra máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×