Skattamáli vísað frá héraði að ósk ákæruvaldsins eftir ákúrur Mannréttindadómstólsins Árni Sæberg skrifar 22. júní 2022 15:09 Hæstiréttur Íslands vísaði málinu frá að ósk ákæruvaldsins. Vísir/Vilhelm Máli Ragnars Þórissonar, stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, var vísað frá héraðsdómi að ósk ákæruvaldsins í dag með öðrum dómi Hæstaréttar í málinu. Ragnar hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna málsins.
Ragnar var dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar upp á 21 milljón króna í Hæstarétti árið 2014 fyrir skattalagabrot en honum hafði áður verið gerð refsing af hálfu ríkisskattstjóra með 25 prósenta álagi ofan á endurálagningu árið 2010. Brot hans fólst í því að hafa ekki talið fjármagnstekjur til skatts árið 2007. Mannréttindadómstóll Evrópu taldi íslenska ríkið brotlegt fyrir að dæma Ragnar tvívegis til refsingar fyrir sama brot en það fer í bága við ákvæði sjöunda viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu um bann við tvöfaldri refsingu. Í kjölfar dóms Mannréttindadómstólsins sem féll árið 2019 fór óskaði Ragnar eftir því að mál hans yrði tekið upp aftur fyrir Hæstarétti. Endurupptökudómur féllst á beiðni Ragnars í byrjun árs 2022 með vísan til þess að dómur Mannréttindadómstólsins gæti talist ný gögn í málinu í skilningi laga um meðferð sakamála. Þrátt fyrir að ákæruvaldið hafi lagst gegn því að málið yrði tekið upp aftur tók það undir aðalkröfu Ragnars fyrir Hæstarétti að málinu yrði vísað frá héraðsdómi. Með vísan til reglunnar um bann við tvöfaldri refsingu, dóms Mannréttindadómstólsins og málsatvika að öðru leyti féllst Hæstiréttur á kröfu ákæruvaldsins um að málinu yrði vísað frá héraðsdómi. Dóm Hæstaréttar má lesa í heild sinni hér og ákvörðun Endurupptökudóms hér.
Dómsmál Mannréttindadómstóll Evrópu Skattar og tollar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira