Myndskeið: Eldur í Garðabæ

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í Garðabæ eftir að hár hvellur heyrðist þar á fimmta tímanum síðdegis.

Að sögn varðstjóra slökkviliðsins var töluverður eldur í byrjun en slökkvistarf gekk vel og hefur nú tekist að slökkva eldinn.

Í ljós kom að gaskútur hefði sprungið með þessum afleiðingum, en í kjölfarið kviknaði eldur í þaki í nýbyggingu í Eskiási. Myndskeiðinu hér að ofan náði Birkir Laufdal Arnarsson af eldinum skömmu eftir að sprengingin varð.

Lögregla er á staðnum eins og slökkvilið.
Lögregla er á staðnum eins og slökkvilið. Ljósmynd/Þorgerður María

Sprengingar með stuttu millibili

Varðstjóri slökkviliðsins segir að líklega hafi menn verið að bræða dúk á þakinu en ítrekar að það séu ekki staðfestar upplýsingar.

Sjónvarvottur sem mbl.is talaði við sagði að vond lykt væri á svæðinu og að hann hefði fundið fyrir óþægindum í öndunarfærum.

Svo virðist sem hluti gaskúts hafi hafnað á bifreið af …
Svo virðist sem hluti gaskúts hafi hafnað á bifreið af miklum krafti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fréttin verður uppfærð.

Reykur stígur upp til himins.
Reykur stígur upp til himins. Ljósmynd/Aðsend
Slökkvilið að störfum í dag.
Slökkvilið að störfum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon
Horft í átt að reyknum sem leggur af staðnum.
Horft í átt að reyknum sem leggur af staðnum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert