Átak Sameinuðu þjóðanna gegn dreifingu villandi upplýsinga Heimsljós 26. október 2020 11:34 Sameinuðu þjóðirnar hafa hleypt af stokkunum vitundarvakningu um rangfærslur og rangar eða villandi upplýsingar sem þrífast á netinu. Langtímamarkmiðið er að breyta hegðun notenda samfélagsmiðla. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kynnti nýtt heimsátak í síðustu viku sem kallast „Pause“ og felur í sér hvatningu til fólks um að staldra við eitt augnablik, hugsa sig um tvisvar, áður en það deilir færslum á netinu. „Rangar upplýsingar geta verið banvænar á tímum COVID-19 faraldursins. Þess vegna skulum við sverja þess eið að hugsa okkur um tvisvar áður en við deilum efni,“ segir Guterres. Nýja átakið er hluti af Verified, frumkvæði Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í maímánuði síðastliðnum til að koma á framfæri aðgengilegum upplýsingum um heilbrigðismál. Áhersla er lögð á upplýsingar sem byggja á traustum vísindalegum grunni. Þá er Verified vettvangur jákvæðra frásagna um samstöðu gegn COVID-19. Um #PledgeToPause segir í frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNRIC): „Átakið byggir á rannsóknum sem benda til að það kunni að skipta sköpum að staldra við andartak á samskiptamiðlum. Slíkt minnki líkur á að fólk dreifi yfirgengilegu eða tilfinningahlöðnu efni og dragi þar með úr dreifingu rangfærslna. Vonast er til að bæta almennt fjölmiðlalæsi. Markmiðið er að hjálpa notendum að koma auga á rangar upplýsingar og forðast að áframsenda til vina og kunningja. Ætlunin er að ná til eins milljarðs manna fyrir árslok. „Þegar rangfærslur þrífast, missir almeningur traust og gerir mistök sem grafa undan aðgerðum stjórnvalda og hætta jafnvel eigin lífi,“ segir Melissa Fleming framkvæmdastjóri upplýsingamála hjá Sameinuðu þjóðunum. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent