United í Meistaradeildina eftir stórsigur á Chelsea

Leikmenn United fagna þriðja markinu.
Leikmenn United fagna þriðja markinu. AFP/Oli Scarff

Manchester United gulltryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu í fótbolta á næsta tímabili með 4:1-stórsigri á Chelsea á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Casemiro kom United yfir á 6. mínútu og fékk Chelsea fín færi til að jafna, þangað til Anthony Martial tvöfaldaði forskotið í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Bruno Fernandes bætti við fjórða markinu úr víti á 73. mínútu og aðeins fimm mínútum síðar gerði Marcus Rashford fimmta markið.

Joao Félix minnkaði muninn fyrir Chelsea á 89. mínútu, en það reyndist aðeins sárabótarmark og afar sannfærandi sigur United-manna varð staðreynd.

United er nú í þriðja sæti með 72 stig og Chelsea í 12. sæti með 43.  

Casemiro skorar fyrsta mark leiksins.
Casemiro skorar fyrsta mark leiksins. AFP/Oli Scarff
Man. Utd 4:1 Chelsea opna loka
90. mín. Alejandro Garnacho (Man. Utd) á skot sem er varið Aftur er Garnacho nálægt því að skora. Sleppur í gegn en Kepa gerir glæsilega í að verja.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert