Bein útsending: Málþing um ofbeldi og morð á konum í Mexíkó Atli Ísleifsson skrifar 30. nóvember 2021 11:30 Kynbundið ofbeldi, mannshvörf og morð á konum í Mexíkó eru tíð en fáir eru látnir sæta ábyrgð. Að meðaltali eru tíu konur myrtar á degi hverjum. Amnesty Íslandsdeild Amnesty International stendur að málþingi um stöðu kvenna í Mexíkó í dag milli klukkan 12 og 13.
Claudia Ashanie Wilson, héraðslögmaður og varaformaður Íslandsdeildar Amnesty International, leiðir málþingið, en hægt verður að fylgjast með því í beinu streymi í spilara að neðan. Í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International segir að sérstakir gestir málþingsins séu þær Wendy Andrea Galarza feministi og baráttukona, og Edith Olivares Ferreto, framkvæmdastjóri Amnesty International í Mexíkó. Heimsóknin er hluti af árlegri, alþjóðlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi. Í erindi sínu mun Edith Olivares greina frá alvarlegum brotum á rétti kvenna til lífs og líkamlegs öryggis í Mexíkó, hvernig það þrífst og hvernig aðgerðasinnar og alþjóðasamfélagið getur gripið til aðgerða til verndar réttindum kvenna og stúlkna í landinu. Wendy Galarza segir sögu sína á málþinginu og greinir frá baráttu sinni fyrir réttindum kvenna í Mexíkó. Hægt er að fylgjast með málþinginu í spilaranum að neðan. Kynbundið ofbeldi, mannshvörf og morð á konum í Mexíkó eru tíð en fáir eru látnir sæta ábyrgð. Að meðaltali eru tíu konur myrtar á degi hverjum. Í skýrslu sem Amnesty International í Mexíkó gaf út í september 2021 og nefnist Justice on Trial kemur fram að á síðasta ári voru 3.723 morð á konum skráð en þar af voru 940 konur myrtar af hendi karlmanns fyrir það eitt að vera konur. Yfirvöld láta undir höfuð leggjast að rannsaka morðin með fullnægjandi hætti, ýmist vegna þess að vettvangur glæps er ekki skoðaður nægilega vel, sönnunargögn týnast eða áhugi er ekki til staðar á að sinna rannsókn. Þessir alvarlegu ágallar koma í veg fyrir að málin rati til dómsstóla og að hinir seku sæti ábyrgð. Oft þurfa fjölskyldur hinna myrtu sjálfar að rannsaka morðin með tilheyrandi álagi og kostnaði en þessi ábyrgð fellur oftast í skaut kvenna. Í sumum tilfellum hóta og ógna yfirvöld fjölskyldunum í þeim tilgangi að reyna að kæfa málið. Embætti saksóknara er einnig vanbúið til að framfylgja rannsókn á morðum á konum, ýmist vegna skorts á mannafla, búnaði og sérfræðiþekkingar. Að auki sæta konur sem rísa upp og mótmæla ofbeldinu kúgun af hálfu yfirvalda, geðþóttahandtökum, útskúfun og margvíslegu ofbeldi. Ofbeldi og morð á konum í Mexíkó eiga sér langa sögu en á síðustu árum hafa þessi grófu brot gegn konum fengið aukna athygli í kjölfar fjölda mótmæla gegn ofbeldi á konum á vegum kvenréttindahreyfinga í landinu. Wendy Galarza, sem er baráttukona fyrir réttátara samfélagi í heimalandi sínu, tók þátt í einum slíkum mótmælum þann 9. nóvember 2020 í Cancún og týndi næstum lífi sínu. Þegar hópur mótmælenda hóf að toga niður og brenna viðartálma skaut lögreglan skotum upp í loft, en að sögn sumra skaut hún í átt að mannfjöldanum. Wendy áttaði sig síðar á því að hún væri með skotsár á fótlegg og sköpum. Þeir sem grunaðir eru um að hafa staðið að skotárásinni hafa ekki enn sætt ábyrgð. Mál hennar er eitt af tíu málum þolenda mannréttindabrota sem eru hluti af herferðinni, Þitt nafn bjargar lífi. Unnt er að skrifa undir mál hennar og fleiri þolenda á www.amnesty.is,“ segir í tilkynningunni.
Mexíkó Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira