Innlent

Flúði farbann vegna nauðgunar og býðst til að spila frítt

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Ef marka má fréttir kólumbískra miðla undanfarna daga virðist Andrés ekki vera á leiðinni frá Kólumbíu í bráð.
Ef marka má fréttir kólumbískra miðla undanfarna daga virðist Andrés ekki vera á leiðinni frá Kólumbíu í bráð. Vísir/Hulda Margrét

Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Manga Escobar, sem flúði Ísland í farbanni í desember síðastliðnum eftir að hafa hlotið fangelsisdóm fyrir nauðgun, er ennþá staddur í Kólumbíu og segist ólmur vilja hasla sér völl í atvinnumennsku á ný. Hefur hann boðist til að spila frítt fyrir sitt gamla félag, Deportivo Cali.

Andrés lék með Leikni úr Reykjavík í úrvalsdeild karla sumarið 2021. Hann lék átján deildarleiki og skoraði tvö mörk fyrir Breiðholtsliðið. Hann yfirgaf það eftir tímabilið. 

Á seinasta ári dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Andrés í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Hann áfrýjaði dómnum til Landsréttar og var úrskurðaður í farbann þar til dómur Landsréttar lægi fyrir. 

Þann 22.september síðastliðinn staðfesti Landsréttur síðan dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá féllst Landsréttur jafnframt á þá kröfu ákæruvaldsins að Andrés skyldi vera áfram í farbanni þar til afplánun hæfist.

Líkt og fram kom í frétt Vísis í janúar síðastliðnum fór Andrés hins vegar af landi brott í desember á seinasta ári. 

Hann mætti í útvarpsviðtal hjá Deporte sin Tabujos þann 18.janúar og fjölmargir vefmiðlar í Kólumbíu unnu fréttir upp úr viðtalinu.

Í viðtalinu sagði Andrés að hann hefði komið „heim“ til Cali fyrir einum og hálfum mánuði og að málaferlin gegn honum á Íslandi væru enn opin. Þá lét hann hafa það eftir sér að náðst hefði samkomulag við íslensk yfirvöld „af mannúðarástæðum“, fyrir tilstilli Gustavo Quijano frá Knattspyrnusambandi Kólumbíu, sem og „nokkurra annarra utanaðkomandi.“

Á öðrum stað í viðtalinu sagði Andrés að hann hafi „biðlað til yfirvalda“ um hjálp. „Í sannleika sagt bjóst ég við meira af þeim, og það var undir mér komið að leysa þetta og hér er ég í dag.“

Andrés var spurður að því í þættinum hver framtíðaráform hans væru og svo virtist sem að yfirvofandi fangelsisvist á Íslandi væri ekki ofarlega í huga hans.

„Það eina sem ég vil er að geta haldið áfram að spila.“

Segist bíða svara

Ef marka má fréttir fjölmargra kólumbískra miðla undanfarna daga virðist Andrés ekki vera á leiðinni frá Kólumbíu í bráð. 

Í viðtali við Deporte en Común nú á dögunum segist hann hafa stundað æfingar eins síns liðs undanfarna mánuði. Segist hann ólmur vilja spila með Deportivo Cali. Kveðst hann gert forseta liðsins tilboð um að spila frítt með liðinu á undirbúningstímabilinu, og bíði nú svara.

„Ég hef látið hann vita að ég sé alltaf til taks,“ segir Andrés í viðtalinu. 

Tekur hann fram að þar sem hann beri mikla væntumþykju til síns gamla liðs þá sé hann reiðubúinn að bjóða fram krafta sína endurgjaldslaust. Hann myndi ekki bjóða neinu öðru liði slíkt.

Hann bætir við á öðrum stað: „ Ég vil ekki hljóma hrokafullur, en ég veit að ég er frábær knattspyrnumaður og ég get orðið liðinu að gagni.“ [...] „Ég vona að þetta muni ganga eftir, mig langar virkilega að snúa aftur á völlinn.“

Þess ber að geta að undanfarnar vikur og mánuði hefur Andrés verið virkur á Instgram og hefur reglulega birt myndir frá lífi sínu í Kólumbíu. 

Á dögunum birti Darío Lezcano, leikmaður Colo Colo og vinur Andrésar færslu á Instagram þar sem sjá má þá félaga í grillveislu ásamt fleiri þarlendum knattspyrnumönnum. Fram kemur í frétt kólumbíska miðilsins La Hora að færslan hafi vakið hörð viðbrögð hjá stuðningsmönnum Colo Colo í ljósi þess að Escobar hafi hlotið dóm fyrir nauðgun á Íslandi.


Tengdar fréttir

Flúði land í far­banni vegna nauðgunar­dóms

Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Escobar Diaz, sem hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir nauðgun fór af landi brott í desember síðastliðnum. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann í september síðastliðnum og bíða afplánunar í fangelsi á Íslandi.

Andrés Escobar dæmdur fyrir kynferðisbrot

Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés „Manga“ Escobar, sem lék með Leikni R. á síðasta tímabili var dæmdur fyrir kynferðisbrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×