Bandarísk transkona ætlar að flýja til Íslands: „Ég þarf að fara eitthvert þar sem ég veit að ég er örugg“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 4. desember 2022 12:03 Willgohs segir íslenskt samfélag hafa tekið henni opnum örmum og þar hafi hún upplifað sig sem velkomna. Getty Rynn Willgohs er fimmtug transkona frá Fargo í Norður-Dakóta sem hyggst flytja búferlum til Íslands sökum fordóma og ofsókna sem hún kveðst mæta sem transkona í Bandaríkjunum.
Í samtali við Grand Forks Herald segist Willgohs hafa farið í sumarfrí til Íslands og upplifað þar allt annað viðmót gagnvart transfólki heldur en í Bandaríkjunum. Í Bandaríkjunum sé hún utangarðs og finnst henni vera ógnað. Hún segir íslenskt samfélag hins vegar hafa tekið henni opnum örmum og þar hafi hún upplifað sig sem velkomna. „Þetta er allt annar heimur þar,“ segir hún og bætir við að það hafi tekið hana dálítinn tíma að venjast því að vera séð eins og hver önnur venjuleg manneskja. Réttindi transfólk skert verulega Á síðustu misserum hefur verið þrengt að lagalegum réttindum transfólks í Bandaríkjunum um leið og fordómar og hatursglæpir hafa aukist verulega. Sem dæmi má nefna að árið 2021 höfðu aldrei jafnmargt trans og kynsegin fólk í Bandaríkjunum fallið fyrir morðingja hendi. Víða um Bandaríkin hafa verið sett lög og reglugerðir sem talin eru draga verulega úr réttindum samkynhneigðra, trans- og kynsegin fólks. Árið 2020 samþykkti heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytið til að mynda breytingar á núverandi heilbrigðisstryggingakerfi Bandaríkjanna (e. The Affordable Care Act). Óttast að ástandið muni versna Willgohs hefur látið að sér kveða í réttindabaráttu transfólks í heimabæ sínum og segir það hafa gert sig að auðveldu skotmarki. Hún hafi meðal annars sætt ofsóknum og setið undir hótunum. Fólk hafi meðal annars hótað að skvetta á hana sýru, skera af henni brjóstin eða nauðga henni. „Ég held að ástandið í þessu landi eigi eftir að snarversna fyrir þá jaðarsettu, sérstaklega á dreifbýlissvæðum og í rauðu ríkjunum,“ segir Willgohs á þar við ríkin þar sem Repúblikanar ráða ríkjum.Willgohs hyggst flytja frá Bandaríkjunum áður en bandarísku forsetakosningarnar eiga sér stað árið 2024. Eiginkona hennar mun verða eftir í Bandaríkjunum. Willgohs bindur vonir við að fá vinnu á Íslandi og þurfa ekki að sækja um hæli. Þá hyggst hún sækja um tvöfaldan ríkisborgararétt en hún hefur nú þegar notað sparnaðinn sinn að kaupa sér íbúð hér á landi. „Ég þarf að fara eitthvert þar sem ég veit að ég er örugg. Þar sem ég veit að ég fæ lagalega vernd,“ segir Willgohs jafnframt. Miðilinn ræðir einnig við aðra transkonu frá Fargo, Zara Crystal en hún hyggst feta í fótspor Willgohs og sækja um hæli í Svíþjóð. Konurnar tvær vinna nú að stofnun hjálparsamtaka sem munu aðstoða transfólk sem flytja frá Bandaríkjunum og setjast að í löndum þar sem réttindi þeirra eru viðurkenndari. „Í samanburði við sum önnur lönd er transfólk öruggara í Bandaríkjunum. En í samanburði við Ísland eða Noreg þá erum við langt á eftir,“ segir Lillian Guetter formaður samtakana Pride Collective í Fargo.
Málefni trans fólks Bandaríkin Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira