Innlent

Dómarakapall í Landsrétti

Heimir Már Pétursson skrifar
Frá því Landsréttur var stofnaður hafa tveir þeirra sem Sigríður Andersen færði niður 15-manna lista hæfnisnefndar fengið dómarastöðu við réttinn. Þá hafa þrír af þeim fjórum dómurum sem Sigríður færði upp listann verðið endurskipaðir í embætti.
Frá því Landsréttur var stofnaður hafa tveir þeirra sem Sigríður Andersen færði niður 15-manna lista hæfnisnefndar fengið dómarastöðu við réttinn. Þá hafa þrír af þeim fjórum dómurum sem Sigríður færði upp listann verðið endurskipaðir í embætti. Vísir/Vilhelm

Þrír af fjórum dómurum við Landsrétt sem þáverandi dómsmálaráðherra færði upp á lista hæfnisnefndar hafa fengið nýja skipun við réttinn. Dómararnir sögðu ekki af sér samkvæmt fyrri skipunum fyrr en eftir að þeir voru skipaðir á nýjan leik. Nú er staða við réttinn laus til umsóknar.

Allir landsréttardómararnir fjórir sem Sigríður Andersen skipti inn á í fimmtán dómara hóp þegar skipað var í dóminn fyrst árið 2017 fóru í leyfi frá störfum eftir fyrri dóm Mannréttindadómstólsins í fyrra sumar.

Hér er listi yfir þá fimmtán sem hæfnisnefnd taldi hæfasta í jafnmörg embætti við Landsrétt vorið 2017. Þeir sem merktir eru með rauðu færði Sigríður niður lista þeirra tuttugu og þriggja sem hún mat hæfasta. Á listanum til hægri er síðan listi Sigríðar þar sem þau fjögur sem hún færði upp listann eru merkt með bláu.

Töluverð tilfærsla hefur verið á dómaraembættunum fimmtán við Landsrétt frá því hann var fyrst skipaður vorið 2017.Grafík/ HÞ

Þau fóru öll í leyfi frá dómarastörfum eftir fyrri dóm Mannréttindadómstólsins í fyrrasumar en þrjú þeirra hafa síðan fengið endurskipun í ákveðnum dómarakapli sem hófst þegar Vilhjálmur H. Vilhjálmsson sagði af sér embætti sökum aldurs haustið 2019. Eftir auglýsingu var Eiríkur Jónsson sem áður hafði verið tekinn af 15-listanum skipaður í stað Vilhjálms.

Þegar Ingveldur Einarsdóttir var skipuð hæstaréttardómari í desember 2019 sótti Ásmundur Helgason um hennar embætti og var endurskipaður í Landsrétt í apríl á þessu ári. Hann sagði þá af sér samkvæmt fyrri skipun þar sem skipun dómara gildir í raun til lífstíðar. Þá losnaði fyrri staða hans sem Arnfríður Einarsdóttir sótti um og fékk í júlí á þessu ári. Við það losnaði fyrri staða hennar ásamt stöðu Sigurðar Tómasar Magnússonar sem hafði fengið skipun í Hæstarétt. Þá fékk Ragnheiður Bragadóttir endurskipun og Jón Höskuldsson sem Sigríður hafði áður fært af 15-listanum var einnig skipaður í embætti landsréttardómara.

Nú er staðan sú að fyrri staða Ragnheiðar er laus til umsóknar og rennur umsóknarfresturinn út hinn 7. desember. 

Jón Finnbjörnsson er sá eini fjórmenninganna sem Sigríður færði upp listann sem enn er í leyfi og ekki fengið endurskipun. Í samtali við fréttastofu vildi hann ekki gefa upp hvort hann hyggðist sækja um embættið og fá þannig mögulega endurskipun eins og hinir dómararnir þrír.


Tengdar fréttir

Forsætisráðherra segir fyrrverandi dómsmálaráðherra hafa axlað ábyrgð

Forsætisráðherra segir dóm Mannréttindadómstólsins verða skoðaðan ítarlega af stjórnvöldum. Fyrrverandi dómsmálaráðherra hafi sagt af sér eftir fyrri dóm undirdeildar og því axlað ábyrgð á málinu, Dómsmálaráðherra segir dóminn nú ekki kalla á viðbrögð að hálfu stjórnvalda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×