Samherji Arons smitaður

Casper Mortensen.
Casper Mortensen. AFP

Kórónuveiran hefur skotið sér niður í herbúðum spænsku meistaranna í handknattleik karla, Barcelona, en með liðinu leikur Aron Pálmarsson og íþróttaáhugafólk þekkir. 

Félagið greindi sjálft frá smitinu en sá smitaði er Casper Mortensen en ekki er vitað til þess að aðrir leikmenn liðsins séu smitaðir. 

Mortensen er danskur landsliðsmaður og er að hefja þriðja tímabilið með Barcelona en var áður hjá Hannover-Burgdorf. 

Barcelona á að mæta Zagreb frá Króatíu á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert