Hanna Björg býður sig fram til formennsku

Hanna Björg í kennslustund. Mynd úr safni.
Hanna Björg í kennslustund. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hanna Björg Vil­hjálms­dótt­ir, fram­halds­skóla­kenn­ari og for­kona jafn­rétt­is­nefnd­ar Kenn­ara­sam­bands Íslands, hefur ákveðið að bjóða sig fram til að gegna formennsku í sambandinu. 

Frá þessu greinir hún á Facebook og segir að ef kennarar veiti sér traust þá sé hún fús, viljug og áhugasöm um að leiða stéttina næstu fjögur árin.

Hún hafi starfað með forystu framhaldsskólakennara lengur en hún muni, og farið í gegnum samninga, ósætti, sigra og ósigra.

Mikilvægasta starfið

„Sú reynsla og þekking á Kennarasambandinu er dýrmæt og ég tel að hún muni nýtast mér í frekara starf innan sambandisins og í þágu kennara. Allir kennarar á öllum skólastigum eru mikilvægir og ég mun sannarlega gera mér far um að vera málsvari allra,“ skrifar Hanna Björg.

„Frá því ég hóf störf sem kennari hef ég haft áhuga og metnað fyrir bæði menntun í landinu og kjaramálum stéttarinnar. Það verður leiðarstef mitt ef kennarar treysta mér til forystu. Grundvöllur kraftmikillar kjarabaráttu er sterk sjálfsmynd stéttarinnar og rík fagvitund.

Kennarastarfið er mikilvægasta starfið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert