„Svo er það náttúrulega önnur saga hvort öll liðin séu að fylgja þessari reglu“ Runólfur Trausti Þórhallsson og Svava Kristín Gretarsdóttir skrifa 9. apríl 2021 18:46 Arnar Daði ræddi við Stöð 2 og Vísi í dag. vísir/hulda margrét Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu í Olís-deild karla í handbolta, ræddi við Stöð 2 og Vísi æfingabannið hér á landi. Hann segist ekki viss um að öll lið landsins séu að fara eftir settum reglum. „Maður hefur lært á þessu ári sem þetta er í gangi að maður veit aldrei við hverju á að búast þegar Þríeykið, heilbrigðisráðherra og fleiri halda þessa fréttamannafundi. Það væri athyglisvert að fara yfir tímalínuna í þessu.“ „Við vorum að spila í október þegar það var fjöldi smita í landinu og núna megum við varla sjást þó það séu bara 3-4 smit. Maður veit aldrei við hverju má búast og það er ótrúlegt að ári seinna sé ekki komin nein skýr lína sem samböndin eða félögin getum byggt okkar áætlanir á. Á sunnudagskvöldi veit maður varla hvernig næsta vika verður,“ sagði Arnar Daði um óvænt æfinga- og keppnisbann sem sett var á fyrir nokkrum vikum. „Við vorum að vonast eftir því í desember að sérsamböndin myndu passa það að það myndi ekki allt fara í lás þó það myndu smit blossa upp hér eða þar. Greinilegt að það er ekki mikið að gerast bakvið tjöldin hjá sérböndunum,“ bætti þjálfari Gróttu við. Arnar segist vera heppinn að geta verið í íþróttasalnum 3-4 tíma á dag til að stýra æfingum í litlum hópum. Hann er ekki viss um að allir þjálfarar búi svo vel. „Svo er það náttúrulega önnur saga hvort öll liðin séu að fylgja þessari reglu.“ „Nei ég er ekki bjartsýnn sko, ég er heldur ekkert svartsýnn. Ég bara nenni ekki að spá í þessu,“ sagði Arnar Daði einnig um framhaldið. Það virðist þó vera rofa til og samkvæmt fréttum dagsins á að leyfa íþróttir á nýjan leik við fyrsta tækifæri. Klippa: Arnar Daði þreyttur á skorti á upplýsingum Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Handbolti Íslenski handboltinn Olís-deild karla Grótta Mest lesið Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Hóta því að lögsækja FIFA Fótbolti Óskar verði sjálfur að svara fyrir ákvörðun sína Fótbolti Haltrandi Luka Doncic leiddi Dallas til sigurs og Boston tapaði Körfubolti Fleiri fréttir Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Sjá meira
„Maður hefur lært á þessu ári sem þetta er í gangi að maður veit aldrei við hverju á að búast þegar Þríeykið, heilbrigðisráðherra og fleiri halda þessa fréttamannafundi. Það væri athyglisvert að fara yfir tímalínuna í þessu.“ „Við vorum að spila í október þegar það var fjöldi smita í landinu og núna megum við varla sjást þó það séu bara 3-4 smit. Maður veit aldrei við hverju má búast og það er ótrúlegt að ári seinna sé ekki komin nein skýr lína sem samböndin eða félögin getum byggt okkar áætlanir á. Á sunnudagskvöldi veit maður varla hvernig næsta vika verður,“ sagði Arnar Daði um óvænt æfinga- og keppnisbann sem sett var á fyrir nokkrum vikum. „Við vorum að vonast eftir því í desember að sérsamböndin myndu passa það að það myndi ekki allt fara í lás þó það myndu smit blossa upp hér eða þar. Greinilegt að það er ekki mikið að gerast bakvið tjöldin hjá sérböndunum,“ bætti þjálfari Gróttu við. Arnar segist vera heppinn að geta verið í íþróttasalnum 3-4 tíma á dag til að stýra æfingum í litlum hópum. Hann er ekki viss um að allir þjálfarar búi svo vel. „Svo er það náttúrulega önnur saga hvort öll liðin séu að fylgja þessari reglu.“ „Nei ég er ekki bjartsýnn sko, ég er heldur ekkert svartsýnn. Ég bara nenni ekki að spá í þessu,“ sagði Arnar Daði einnig um framhaldið. Það virðist þó vera rofa til og samkvæmt fréttum dagsins á að leyfa íþróttir á nýjan leik við fyrsta tækifæri. Klippa: Arnar Daði þreyttur á skorti á upplýsingum Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Handbolti Íslenski handboltinn Olís-deild karla Grótta Mest lesið Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Hóta því að lögsækja FIFA Fótbolti Óskar verði sjálfur að svara fyrir ákvörðun sína Fótbolti Haltrandi Luka Doncic leiddi Dallas til sigurs og Boston tapaði Körfubolti Fleiri fréttir Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Sjá meira
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn