Jólabjórinn viku fyrr á ferðinni en vanalega Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. október 2020 14:34 Jólabjórinn er fyrr á ferðinni en vanalega. Vísir/Vilhelm
Sala á jólabjór hefst í vínbúðum ÁTVR fimmtudaginn 5. nóvember, viku fyrr en venjulega. Sérstakar aðstæður í samfélaginu vegna faraldurs kórónuveiru hafa áhrif á þessa ákvörðun, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR. Von er á um hundrað tegundum drykkja sem tengjast jólatímabilinu en þar ber líklega hæst hinar ýmsu tegundir jólabjórs, sem Íslendingar gæða sér iðulega á í aðdraganda jóla – og e.t.v. eitthvað fram yfir hátíðarnar í einhverjum tilvikum. Sigrún segir að með því að færa upphaf sölunnar fram um eina viku séu Vínbúðirnar að færa upphaf „jólabjórstímabilsins“ nær því sem verið hefur annars staðar þar sem bjór er seldur. Kórónuveiran hafi einnig sitt að segja. „Aðstæður í samfélaginu eru sérstakar eins og allir vita og það hefur vissulega áhrif. Hitt er að með þessu erum við að samræma upphaf jólabjórstímabilsins þ.e. nær því sem hefur verið á veitingahúsum og í Fríhöfninni,“ segir Sigrún. Íslendingar kætast eflaust margir við þetta forskot á jólabjórssæluna. Það er þó vert að nefna að Alma Möller landlæknir hefur ítrekað varað við óhóflegri áfengisneyslu, sérstaklega í miðjum heimsfaraldri. „Ég vil ítreka sérstaklega að það er ekki gagnlegt að nota áfengi til að takast á við erfiðar tilfinningar eða kvíða,“ sagði Alma á upplýsingafundi í mars. „Það er skammgóður vermir sem gerir ógagn.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Neytendur Áfengi og tóbak Jól Jóladrykkir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent Snýr aftur til Snjallgagna Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Aukið öryggi í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf Samstarf Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Fleiri fréttir Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Sjá meira