Reynsluboltar með nýja hljómsveit

Höskuldur Ólafsson, kenndur við Quarashi, er annar meðlima Kig & …
Höskuldur Ólafsson, kenndur við Quarashi, er annar meðlima Kig & Husk.

Hljómsveitin Kig & Husk hefur sent frá sér fyrsta lagið af væntanlegri breiðskífu en sveitin er skipuð tveimur reynsluboltum úr tónlistarheiminum; Höskuldi Ólafssyni sem kenndur er við hljómsveitina Quarashi og Frank Hall úr Ske og fleiri sveitum. 

Lagið kallast „So long Holly“. Lag og texti er innblásinn af kvikmyndinni The Third Man frá 1959 en þá sérstaklega ódauðlegri ræðu undir lok myndarinnar þar sem persóna Orsons Wells upphefur áhrif ófriðar og átaka á menningarlegar framfarir.



Tónlist Kig & Husk hefur verið lýst sem poppuðu art-rokki þar sem hefbundið tónlistarform er þanið út og óhljóðum stillt upp á móti melódískum lag- og sönglinum. Allur hljóðfæraleikur, forritun, útsetningar og hljóðblöndun er í höndum Kig & Husk en Paul Maguire (The Stairs, Ske, Kólumkilli o.fl.) sér um trommuleik.

Í tilkynningu kemur fram að Frank Hall nam tón- og myndlist við The Royal Conservatory og The Royal Academy í Hollandi og útskrifaðist þaðan með MA-gráðu árið 2006. Frank hefur samið tónlist við fimm kvikmyndir, Svartur á leik, Julia, Afinn, Ég man þig og Albanian Gangster. Hann hlaut tilnefningu til Eddunnar fyrir Svartur á leik, hlaut verðlaun fyrir bestu frumsömdu tónlist fyrir Julia á kvikmyndahátíðinni Screamfest í Los Angeles. Hann var einnig tilnefndur fyrir tónlist ársins í Leikhús- og kvikmyndatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2018 fyrir tónlistina við kvikmyndina Ég man þig. Frank er meðlimur í hljómsveitunum Skárren ekkert og Ske og þær sveitir hafa gefið út talsvert af tónlist. Frank hefur einnig unnið tónlist og hljóðmynd fyrir fjölda leiksýninga, hvort sem er einn sín liðs eða í samstarfi við aðra. Hann hefur sömuleiðis starfað sem listrænn ráðunautur Borgarleikhússins og dagskrárstjóri Rásar 2. 

Höskuldur Ólafsson hefur starfað með ýmsum hljómsveitum, komið að leiksýningum og kvikmyndum og gefið út hljómplötur með bæði Ske og Quarashi, þ.á m. hjá Sony Columbia Records árið 2002 (Quarashi) sem var dreift af EMI Publishing um allan heim. Platan seldist í fleiri en 500.000 eintökum og hljómsveitin kom fram á tónleikum og tónleikahátíðum í N-Ameríku, Evrópu, Japan og Ástralíu. Höskuldur Ólafsson lauk prófi í íslensku og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og nokkrum árum síðar meistaraprófi í listspeki frá University of East Anglia (UEA) í Englandi, auk rannsóknar-meistaragráðu í heimspeki frá sama háskóla ári síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler