Hafrún, Kjartan og Rán skoða viðbrögð KSÍ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. september 2021 14:22 Hafrún, Kjartan og Rán munu taka málið til skoðunar. Hægt er að senda nefndinni upplýsingar á netfangið uttektarnefnd@isi.is. ÍSÍ Kjartan Björgvinsson héraðsdómari mun gegna formennsku í þriggja manna nefnd á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem ætlað er að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð Knattspyrnusambands Íslands vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu ÍSÍ og KSÍ. KSÍ fór þess á leit við ÍSÍ, sem eftirlitsaðili með sérsamböndum, að slík nefnd yrði stofnuð. Nú hefur sú nefnd verið skipuð og í henni eiga sæti Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur, Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar og Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur. Nefndin ásamt Lárusi Blöndal, forseta ÍSÍ, og Gísla Gíslasyni, öðrum varaformanni KSÍ.ÍSÍ Úttektarnefnd ÍSÍ er sjálfstæð og óháð í störfum sínum. KSÍ ábyrgist að nefndin fái aðgang að öllum þeim gögnum sem það hefur með höndum. Nefndinni er ætlað að skoða eftirfarandi: Fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og fyrirhugaðrar afsagnar stjórnar KSÍ í september 2021 ásamt því að bregðast við ásökunum sem fram hafa komið m.a. um þöggun innan KSÍ. Staðreyna eins og kostur er hvaða vitneskja hafi verið innan stjórnar og / eða starfsmanna KSÍ um að leikmenn landsliða eða aðrir sem starfa fyrir KSÍ hafi beitt kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi á árunum 2010 – 2021. Lýsa því hvernig eftirliti og viðbrögðum við slíkum atvikum var háttað innan KSÍ á fyrrgreindu tímabili. Taka til athugunar hvort einhverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátttöku kvenna í starfi þess. Þetta er gert í tengslum við fullyrðingar sem fram hafa komið í opinberri umræðu um að KSÍ sé karllægt og fráhrindandi fyrir konur. Í því sambandi verður skoðað hvort skipulag KSÍ eða aðrir þættir í starfseminni séu hamlandi fyrir þátttöku kvenna í starfinu. Leggja grunn að tillögum um úrbætur á verklagi eða um frekari viðbrögð. Úttektarnefnd ÍSÍ hefur störf nú þegar og er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en í nóvember nk. Nefndin mun skila niðurstöðum af sér til framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Hægt er að koma upplýsingum á framfæri til nefndarinnar á netfangið uttektarnefnd@isi.is
KSÍ ÍSÍ Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Lærisveinninn laut í lægra haldi „Verður gaman að bjóða upp á undir átján ára landsliðið gegn A-landsliðinu“ Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Martin frábær í öruggum sigri Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC „Það er ekkert plan B“ „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Ísland eignast tvo Evrópumeistara smáþjóða í taekwondo Óli Kalli í Val og Beitir í HK Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Sjá meira