Eldfjallahópur háskólans vill ekki útiloka kvikuhreyfingar á meira dýpi Elísabet Inga Sigurðardóttir og Birgir Olgeirsson skrifa 28. febrúar 2021 17:37 Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur hefur unnið að mati á jarðvá á Reykjanesskaga undanfarin ár. Vísir/vilhelm Eldfjalla- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur skoðað eldgosavá á Reykjanesskaga frá árinu 2001. Hópurinn segir engin skýr ummerki um kvikuhreyfingar í grynnsta hluta skorpunnar, það er efstu fimm til sex kílómetrar.
Hópurinn segir þó ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að jarðeðlisfræðilega vöktunin nær aðeins yfir efsta stökka hluta skorpunnar, þ.e. niður á fimm til sex kílómetra dýpi. „Af þeim sökum segir þessi vöktun lítið sem ekkert um það sem er í gangi í mið- og neðri hluta skorpunnar,“ segir í færslu hópsins. Óvisst hvað sé um að vera neðar í skorpunni Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur er í ofangreindum hópi. Í samtali við fréttastofu segir hann mikilvægt að hafa það í huga að ekki sé hægt að draga ályktanir af því sem er í gangi neðar í skorpunni. Þorvaldur bendir á að bergfræði hrauna á Reykjanesskaga gefi til kynna að stór hluti af þeirri kviku sem hefur myndað hraunin á Reykjanesskaga komi frá kviku geymslum á átta til tíu kílómetra dýpi og í sumum tilfellum hafi kvikan komið af enn meira dýpi. „Viðstaða kviku í grynnsta hluta skorpunnar tengist því fyrst og fremst grunnstæðum innskotum og/eða myndun aðfærsluæða rétt fyrir gos,“ segir í færslunni. Hópurinn segir rétt ályktað að litlar líkur séu á því að atburðir síðustu daga endi með gosi. „En við getum ekki útilokað þann möguleika ef við lítum til lengri tíma, þá gæti svæðið verið að undirbúa sig fyrir eldsumbrot. Hvaða tímaskali það er - það er opið til umræðu,“ segir Þorvaldur í samtali við fréttastofu. Hann bendir á að ef þessir skjálftar sem riðið hafa yfir undanfarna daga tengjast mikilli færslu á flekaskilunum þá sé líklegt að sú hreyfing sé ekki bundin við efsta hluta skorpunnar. „Heldur nái alveg í gegnum skorpuna og þar af leiðandi hlýtur hún að hafa afleiðingar fyrir hluti sem eru dýpra í skorpunni.“
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Mælir gegn gönguferðum á Keili vegna skjálfta Kristín Jónsdóttir, jarðvásérfræðingur, mælir ekki með gönguferðum á Keili vegna skjálfta sem nú ganga yfir. 28. febrúar 2021 16:59 Skjálfti að stærðinni 4,3 nú síðdegis Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hann yfir 4,3 að stærð og upptökin einn kílómetra vestur af Keili. 28. febrúar 2021 16:31 Skjálfti að stærð 3,7 mældist kílómetra frá Grindavík GPS mælar voru settir upp hjá Fagradalsfjalli í dag. 28. febrúar 2021 15:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Sjá meira
Mælir gegn gönguferðum á Keili vegna skjálfta Kristín Jónsdóttir, jarðvásérfræðingur, mælir ekki með gönguferðum á Keili vegna skjálfta sem nú ganga yfir. 28. febrúar 2021 16:59
Skjálfti að stærðinni 4,3 nú síðdegis Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hann yfir 4,3 að stærð og upptökin einn kílómetra vestur af Keili. 28. febrúar 2021 16:31
Skjálfti að stærð 3,7 mældist kílómetra frá Grindavík GPS mælar voru settir upp hjá Fagradalsfjalli í dag. 28. febrúar 2021 15:09