Rólegra veður í kortunum eftir „heiðarlegan“ storm gærdagsins Atli Ísleifsson skrifar 6. desember 2021 07:09 Hiti um og yfir frostmarki. Vísir/Vilhelm Mun rólegra veður er í kortunum í dag eftir „heiðarlegan“ storm gærdagsins. Er útlit fyrir breytilega átt í dag, yfirleitt á bilinu fimm til tíu metra á sekúndu.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að væntanlega muni flestir landshlutar fá skammt af úrkomu áður en dagurinn sé á enda. Hiti um og yfir frostmarki. Yfirlit: Vetrarfærð er víðast hvar á landinu og flughált er á nokkrum leiðum. Færðarkort Vegagerðarinnar má sjá hér: #færðin https://t.co/On4TGJQx5K— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 6, 2021 „Hitinn mjakast niðurávið og því verður úrkoman ýmist rigning eða snjókoma. Á morgun verður lítil lægð á ferðinni úti fyrir norðurströndinni. Á norðanverðu landinu má þá búast við vestan kalda eða strekkingi og snjókomu með köflum. Sunnantil er útlit fyrir hægari suðlæga átt og stöku él. Frost 0 til 5 stig. Um og uppúr miðri viku virðist eiga að vera tiltölulega rólegt veður áfram, það er allavega ekki stormur í kortunum eins og þau líta út núna þegar þetta er skrifað.“ Spákortið fyrir klukkan 15. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vestlæg átt 5-13 m/s á norðanverðu landinu og snjókoma með köflum. Suðaustan 3-8 á Suður- og Vesturlandi og stöku él. Frost 0 til 6 stig. Á miðvikudag: Suðlæg átt 3-10 og léttskýjað, en stöku él með vesturströndinni. Bætir heldur í vind um kvöldið og fer að snjóa austast á landinu. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á fimmtudag: Suðaustan 5-13 og rigning eða snjókoma með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hiti kringum frostmark. Á föstudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil él. Frost 0 til 6 stig. Á laugardag: Hvöss austlæg átt með rigningu eða slyddu, talsverð úrkoma um landið suðaustanvert. Hiti 1 til 6 stig. Á sunnudag: Breytileg átt, rigning eða slydda með köflum og svipaður hiti áfram.
Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél Víða gola og dálítil væta Hiti gæti náð fimmtán stigum norðaustantil Víðast bjart en dálitlar skúrir sunnanlands Þurrt suðvestantil og hiti á landinu að tólf stigum Vaxandi suðaustanátt og bætir í rigningu Léttskýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun Líkur á stöku skúrum eða slydduéljum fram eftir degi Skúrir og slydduél í suðlægum áttum Svölu og óstöðugu skúralofti beint til landsins Búast má við slyddu Rigning með köflum víðast hvar Víðast dálitlar skúrir en bjartara norðanlands Bjartviðri á verkalýðsdaginn Að mestu léttskýjað sunnan- og vestantil Norðlægari vindur í dag en um helgina Hvassast sunnantil og hlýjast vestantil Lægð nálgast landið úr austri Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Sól og allt að þrettán gráður í borginni Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum Hægur vindur og sólríkt veður Hiti að þrettán stigum Siggi stormur lofar hlýju og sólríku sumri Gul viðvörun á Norðurlandi eystra Víða blautt í dag og varað við asahláku Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Enn verður kalt í dag Sjá meira