Fimmti sigurinn hjá meistaraliðinu

Tom Brady sendir boltann á samherja í Philadalphia í nótt.
Tom Brady sendir boltann á samherja í Philadalphia í nótt. AFP

Meistararnir Tampa Bay Buccaneers byrja keppnistímabilið vel í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum en liðið vann Philadelphia Eagles í nótt 28:22 þegar sjötta umferð deildarinnar hófst.

Tampa Bay hefur unnið fimm af fyrstu sex leikjunum en eina liðið sem er með fullt hús stiga er Arizona Cardinals.

Gamla kempan Tom Brady var í toppformi sem fyrr og átti tvær sendingar sem gáfu snertimörk en leikið var í Philadelphia. 

Leikurinn var sá eini sem var á dagskrá en eins og jafnan fara flestir leikir umferðarinnar fram á sunnudegi.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert