Fyrsta landsliðsmark KA-manns í 31 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2021 17:00 Liðsfélagar Brynjars Inga Bjarnasonar í íslenska landsliðinu fagna honum eftir markið í gær. Getty/Boris Streubel Brynjar Ingi Bjarnason skoraði seinna mark íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í jafnteflinu á móti EM-liði Póllands gær. Það voru liðnir meira en þrír áratugir síðan að KA-maður skoraði síðast fyrir A-landslið karla.
Brynjar Ingi kom Íslandi 2-1 yfir með frábærri afgreiðslu á 47. mínútu leiksins eftir að miðvörðurinn að norðan fór fram í aukaspyrnu. Brynjar lagði boltann frábærlega fyrir sig og þrumaði honum síðan óverjandi upp í þaknetið á marki Pólverja. Þetta var aðeins hans þriðji landsleikur og hans fyrsta mark. Það þarf að fara alla leið aftur til 3. apríl 1990 til að finna mark KA-manns fyrir A-landsliðið. Nákvæmlega liðu 31 ár, 2 mánuðir og 5 dagar á milli markanna. Kjartan Einarsson skoraði þá eitt af fjórum mörkum Íslands í 4-0 sigri á Bermúda í vináttulandsleik en leikið var á Þjóðarleikvanginum í Hamilton, höfuðstað Bermúdaeyja. Kjartan, sem var þá að leika sinn fyrsta landsleik, hafði gengið til liðs við KA í desember árið á undan. Hann kom Íslandi í 3-0 með marki rétt fyrir hlé en hafði áður átt stóran þátt í marki Péturs Ormslev. Kjartan lék einnig seinni leikinn í ferðinni á móti Bandaríkjunum í St. Louis án þess að skora en þetta voru hans einu landsleikir sem KA-maður. Kjartan spilaði einn landsleik til viðbótar árið eftir en þá sem leikmaður Keflavíkur. Brynjar Ingi er fimmti KA-maðurinn sem skorar fyrir íslenska landsliðið en hinir auk Kjartans hafa þeir Erlingur Kristjánsson (3 mörk 1982), Gunnar Gíslason (1983) og Steingrímur Birgisson (1984) skoraði fyrir Ísland sem leikmenn KA.
HM 2022 í Katar KA Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Tevez fluttur á spítala vegna brjóstverkja Þjálfari hljóp inn á, var rekinn út af og reyndi að faðma dómara Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Sjá meira