Veiktist alvarlega á Grundartanga og dæmdar bætur níu árum síðar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. apríl 2021 15:00 Verksmiðja Elkem á Grundartanga. Elkem.is Fyrrverandi starfsmanni járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga hafa verið dæmdar bætur vegna sjúkdóms sem hann þróaði með sér í starfi í óviðunandi starfsumhverfi. Starfsmaðurinn veiktist alvarlega árið 2012 og hefur síðan þá barist fyrir réttlæti. Sjóvá þarf að greiða honum 22 milljónir króna og 1,5 milljón króna í miskabætur.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm sinn í vikunni. Starfsmaðurinn höfðaði málið gegn Sjóvá-Almennum og krafðist bóta úr starfsábyrgðartryggingu Elkem hjá Sjóvá vegna atvinnusjúkdóms sem hann teldi að mætti rekja til starfa hans á Grundartanga. Hann starfaði þar í sex ár, lengst af sem tappari við ofn í verksmiðjunni, þar til hann veiktist alvarlega í október 2012. Var hann lagður inn á Landspítala og greindur með sjúkdóminn granulomatosis polyangiitis (GPA), einnig nefndur Wegener's granulomatosis (WG). Um er að ræða bólgusjúkdóm í smáæðum líkamans. Ágreiningslaust var að skilmálar Sjóvár taka til atvinnusjúkdóma. Þrír starfsmenn veiktust Í kjölfar veikinda starfsmannsins og tveggja til viðbótar var kallað eftir áliti sérfræðinga í lyf- og lungnalækningum til að skoða mögulega tengsl veikindanna og mengunar á vinnustaðnum. Sérfræðingarnir töldu vel mögulegt að aðstæður á vinnustað hefðu haft áhrif á sjúkdómsmyndun og skoða þyrfti sérstaklega magn kísilryks í vinnuumhverfi starfsmannsins. Sjóvá hafnaði bótaskyldu árið 2015. Starfsmaðurinn kærði þá niðurstöðu til úrskurðarnefndar vátryggingarmála sem úrskurðaði Sjóvá í hag. Í framhaldinu voru læknir og prófessor dómkvaddir til að rita matsgerð um möguleg orsakatengsl. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að orsakatengsl væru á milli sjúkdóms hans og kristallaðrar kísilsýu í vinnuumhverfinu. Starfsmaðurinn var metinn með varanlegan miska upp á 35 prósent og 30 prósent varanlega örorku. Heilsufarsáhætta samfara rykmengun vanmetin Undir rekstri málsins sem starfsmaðurinn höfðaði gegn Sjóvá árið 2018 voru lungna- og ofnæmislæknir, lungnalæknir og prófessor í efnafræði dómkvödd sem yfirmatsmenn að beiðni Sjóvár. Var það niðurstaða þeirra að heilsufarsáhætta samfara rykmengun hefði verið vanmetin í verksmiðjunni. Svokallað afsogskerfi hefði verið lykilvandamál sem hefði sett af stað keðjuverkun aukinnar útsetningar fyrir innöndun á fínu kísilryki. Ljóst væri af dómskjölum að starfsumhverfið hefði verið heilsuspillandi vegna óþrifnaðar, hita og rykmengunar. Líklegast væri að sjúkdómur starfsmannsins stafaði af innöndun á kvarsryki í starfi sínu. Loks væri það niðurstaða yfirmatsmanna að starfsumhverfið, þar sem kvarsmengun hefði endurtekið mælst yfir leyfilegum mörkum, hefði orðið þess valdandi að hann þróaði með sér sjúkdóminn granulomatosispolyangiitis (GPA). Tvímælalaust saknæmt athæfi Fram kom í málinu að Vinnueftirlit ríkisins hefði ítrekað gert kröfur um nauðsynlegar úrbætur varðandi mengun. Verulegur og langvarandi misbrestur var á vinnusvæði starfsmannsins. Dómurinn taldi óumdeilt að kvarsmengun á starfstöð starfsmannsins hefði ítrekað verið yfir leyfilegum mörkum. Þá kom einnig fram að skort hefði á þjálfun og verklag varðandi notkun á grímum. Rykgrímuskylda hafi ekki verið innleidd fyrr en árið 2011. Heilt á litið taldi dómurinn athafnaleysi Elken í þessum efnum „tvímælalaust saknæmt“. Arnaldur Hjartarson héraðsdómari , Andri Ísak Þórhallsson efnaverkfræðingur og Sif Hansdóttir, sérfræðingur í lungnalækningum, dæmdu Sjóvá til að greiða starfsmanninum tæplega 22 milljónir ásamt vöxtum aftur til ársins 2014. Sömuleiðis 1,5 milljónir króna í miskabætur.
Dómsmál Tryggingar Hvalfjarðarsveit Vinnuslys Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira