Félög eins og Liverpool gætu fengið Gavi frítt í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2023 09:30 Gavi og félagar í Barcelona er á góðri leið með því að tryggja sér spænska meistaratitilinn en hér er hann í leik á móti Real Madrid. Getty/Alex Caparros Spænska undrabarnið Gavi gæti yfirgefið Barcelona í sumar vegna þess að spænska félaginu ætlar ekki að takast að fullgilda nýjan risasamning hans.
Það lítur út fyrir að Liverpool sé að missa af Jude Bellingham lestinni en á sama tíma aukast líkurnar á því að félagið geti nælt í hinn átján ára gamla spænska miðjumann Gavi. Gavi hefur þegar stimplað sig inn hjá bæði Barcelona og spænska landsliðinu og það leit út fyrir að hann ætti sér mjög bjarta framtíð hjá Katalóníufélaginu. View this post on Instagram A post shared by BT Sport (@btsport) Gavi ætlaði sér líka að vera áfram leikmaður Barcelona og hafði skrifað undir nýjan samning með uppkaupsákvæði upp á einn milljarð evra eða um 151 milljarð íslenskra króna. Málið er að Barcelona gat ekki staðfest samninginn vegna slæmrar rekstrarstöðu félagsins. Þeir fengu ekki tilskilin leyfi hjá spænska knattspyrnusambamdinu þar sem þeir eru yfir launaþakinu. Barcelona reyndi að áfrýja þeim úrskurði en henni var nú síðast vísað frá. Gavi er áfram á unglingasamningi en hann rennur út í sumar. Hann má því spila með Barcelona fram á vor þótt að félagið geti ekki framlengt við hann. Takist Barcelona ekki að ganga frá hans málum fyrir 30. júní þá getur strákurinn farið frítt og það er vitað af miklum áhuga hjá Liverpool sem vantar nauðsynlega ferskar fætur inn á miðjuna. Liverpool er hins vegar ekki eina félagið sem hefur áhuga á þessum frábæra unga leikmanni. Barcelona s appeal to register Gavi has been rejected. He will return to his youth contract and lose his #6 shirt. The youth contract includes a clause that allows him to leave on free in the summer. #LFCHope free players fit the Liverpool transfer budget. Go get him!!! pic.twitter.com/DebVmrjUZ6— Zubin Daver (@zubinofficial) March 21, 2023
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Sjá meira