90 prósent lífeyrisþega fengu rangar greiðslur Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. október 2020 16:53 Tryggingastofnun ríkisins. Vísir/Vilhelm
Ríkisendurskoðun telur að ýmislegt megi betur fara í starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins (TR). Bæta þurfi málsmeðferð við ákvarðanatöku, efla þurfi upplýsingagjöf og gæta þess að hærra hlutfall viðskiptavina fái réttar greiðslur. Aðeins 9,4–13% lífeyrisþega fengu réttar greiðslur frá stofnuninni árin 2016-19. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Skýrslan var unnin að beiðni Alþingis og var kynnt á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fyrr í dag. Hún var birt á vef Ríkisendurskoðunar nú síðdegis. Fram kemur í niðurstöðum skýrslunnar að bæta þurfi málsmeðferð við ákvarðanatöku hjá TR. Þá þurfi stofnunin að sinna betur leiðbeiningarskyldu sinni og efla upplýsingagjöf. Einnig þurfi að endurskoða núgildandi fyrirkomulag um að rekin séu umboð fyrir TR hjá sýslumannsembættum landsins. „Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að heildarendurskoðun laga um almannatryggingar ljúki sem fyrst. Vinna við hana hefur staðið yfir frá árinu 2005. Lagaumgjörðin er flókin og ógagnsæ,“ segir í tilkynningu Ríkisendurskoðunar um skýrsluna. Þá bendir Ríkisendurskoðun á að auka þurfi hlutfall viðskiptavina TR sem fái réttar greiðslur frá stofnuninni. Fram kemur í niðurstöðum skýrslunnar að útreikningur greiðslna byggi á tekjuáætlunum sem stofnunin leggi drög að og viðskiptavinur svo staðfestir. TR endurreiknar svo fjárhæðir bóta og leiðréttir greiðslur eftir atvikum. „Á tímabilinu 2016–19 leiddi endurreikningurinn í ljós að mikill meirihluti lífeyrisþega fékk ýmist of- eða vangreiddar greiðslur vegna mismunar á tekjuáætlun og rauntekjum. Einungis 9,4–13% fengu réttar greiðslur. Nauðsynlegt er að ráðast í markvissar aðgerðir til að minnka umfang endurreiknings bóta og draga úr frávikum vegna framangreinds mismunar,“ segir í niðurstöðum skýrslunnar. Fagna úttektinni TR fagnar úttekt Ríkisendurskoðunar og telur margar af tillögum til úrbóta sem þar koma fram afar gagnlegar, að því er segir í yfirlýsingu sem birt var á vef stofnunarinnar nú síðdegis. Stofnunin segir að sífellt sé unnið að því að bæta þjónustu og upplýsingagjöf til viðskiptavina. Talsverðar umbætur hafi verið gerðar á því á þessu ári. Þá þurfi að mati stofnunarinnar að breyta lögum um almannatryggingar til þess að „draga úr og helst eyða að fullu kröfum um endurgreiðslur lífeyris.“ „Uppbyggileg umræða um lífeyriskerfið er mikilvæg, því ítrekum við að Tryggingastofnun fagnar úttekt Ríkisendurskoðunar á stofnuninni og stöðu almannatrygginga. Vonir eru bundnar við að hún leiði til úrbóta og einföldunar á flóknu kerfi, lífeyrisþegum til hagsbóta,“ segir í yfirlýsingu stofnunarinnar.
Tryggingar Stjórnsýsla Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira