fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fréttir

Sakar Morgunblaðið um að magna upp lygar og augljós meiðyrði – „Með ömurlegasta fyrirvaranum. Botnfall“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. desember 2021 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, segir ritstjóra Morgunblaðsins gefa meiðyrðum og lygum bloggarans og kennarans Páls Vilhjálmssonar byr undir báða vængi með Staksteinum dagsins. 

Morgunblaðið birtir í blaði sínu ritstjórnarefni sem nefnist Staksteinar þar sem gjarnan er fjallað um málefni líðandi stundar. Oftar en ekki er í þessum dálk vísað til skrifa bloggarans og kennarans Páls Vilhjálmssonar sem hefur ítrekað á síðustu misserum gagnrýnt RÚV fyrir framgöngu sína gegn Samherja.

Öflugur bloggari

Að þessu sinni gerir Morgunblaðið þó fyrirvara við fullyrðingar Páls sem vísað er til í Staksteinum dagsins.

„Páll Vilhjálmsson, öflugur bloggari, hefur fjallað ítarlega um að „lögreglurannsókn standi yfir á starfsháttum RÚV og aðkomu stofnunarinnar að eitrun og stuldi“..“ 

Þar vísar Morgunblaðið til þess fjölda bloggfærslna Páls þar sem hann lýsir þeirri trú sinni að starfsmenn RÚV hafi átt hlut að því að eitrað var fyrir skipstjóranum Páli Steingrímssyni, en Páll Steingríms er einn meðlima í svonefndri „skæruliðadeild“ Samherja sem gengu svo hart fram í aðför sinni að fjölmiðlamönnum að Samherji þurfti síðar að biðjast afsökunar á því. Áfram halda Staksteinar:

„Hann hefur bent á að stofnunin auglýsi ekki stöðu fréttastjóra þótt sá sem gegnir því fari fljótlega burt. Páll telur að ástæða þess sé sú að lögreglurannsóknin standi yfir og örðugt um mannabreytingar í þeirri stöðu. Það er líkleg ágiskun.

Páll skrifar: „Blaða- og fréttamenn stunda ekki upplýsingamiðlun til almennings þegar starfsbræður og -systur eiga í hlut. Í Norður-Kóreu standa fjölmiðlar vörð um leiðtoga landsins. Á Íslandi eru fjölmiðlar samtaka um að fjalla ekki um glæpi og spillingu í eigin ranni. Líkt og í Norður-Kóreu eru fjölmiðlar á Íslandi á framfæri ríkisins.“ Páll fer það fram úr sér.“ 

Sjálfsögð varúð

Staksteinar segja að Morgunblaðið hafi leitað svara frá RÚV um ásakanir Páls en ekki fengið svör.

„RÚV“ færð á sjötta milljarð í styrk frá ríkinu. Morgunblaðið fær styrk sem nemur 2% af heildartekjum fyrirtækisins sem gefur það út. Áður hafði ríkið hækkað skatt sem leggst á blaðið en ekki keppninauta þess. Morgunblaðið krafði útvarpsstjóra svara varðandi upplýsingar Páls, og fékk útúrsnúninga og þunnildi. Fyrirtækin í landinu ættu að eiga þá úrklippu til að nota síðar spyrji „RÚV“ þau út úr.

Morgunblaðið hefur ekki getað fengið staðfestingu á sumum fullyrðingum Páls í umræddu máli og gætir því sjálfsagðrar varúðar á meðan það hefur ekki breyst.“

Botnfall

Eins og sést hér að ofan setur Morgunblaðið þann fyrirvara við málflutning Páls að hann hafi ekki fengist staðfestur frá RÚV. En þar fyrir utan er ekki settur fyrirvari við þær alvarlegu ásakanir sem Páll hefur viðrað gegn starfsmönnum RÚV um alvarlegan glæp.

Páll fullyrti á bloggi sínu í gær að lögregla sé nú að rannsaka meinta aðkomu stofnunarinnar að eitrun Páls Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Eins fullyrðir hann að útvarpsstjóra sé ókunnugt um hvaða starfsmenn RÚV liggi þar undir grun og eigi mögulega yfir höfði sér ákæru. Eins er þar fullyrt að „glæpir fjölmiðla sæta fréttabanni.“

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, deilir Staksteinum á Twitter og segir það ekki nýtt að Páll Vilhjálmsson ásaki fjölmiðlamenn um glæpi. Þar á meðal hafi hann ásakað Þórð sjálf og fleiri um slíkt. Þórður segir engan fót fyrir þessum ásökunum og því ekki tilefni til að eyða tíma í að svara Páli sjálfum. Hins vegar hafi Morgunblaðið ákveðið að taka þessi meiðyrði upp í Staksteinum og gefa ásökununum þar með byr undir báða vængi með þessum hálfkærings fyrirvara.

„Bloggari hefur verið að ásaka mig og annað fólk um þátttöku í glæp með síendurteknum brjáluðum færslum. Allt er þetta ósatt og augljós meiðyrði. Í bloggarann ætla ég ekki að eyða meiri tíma. En ritstjórar Moggans ákveða að magna þetta upp með ömurlegasta fyrirvaranum. Botnfall.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miklir fjárhagserfiðleikar hjá körfuknattleiksdeild UMFN

Miklir fjárhagserfiðleikar hjá körfuknattleiksdeild UMFN
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda

Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað