Toppslagnum frestað vegna smita

Toppslagur Vals og Fram þarf að bíða um sinn.
Toppslagur Vals og Fram þarf að bíða um sinn. mbl.is/Óttar Geirsson

Ekkert verður af því að Valur og Fram, tvö efstu liðin í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, mætist á morgun eins og til stóð.

Leiknum hefur verið frestað vegna útbreiðslu kórónuveirusmita og í tilkynningu HSÍ segir að nýr leikdagur verði fundinn fljótlega.

Fram er með 21 stig á toppi deildarinnar en Valur er með 16 stig í öðru sæti og á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert