Tveir fluttir slasaðir eftir snjóflóðið Árni Sæberg skrifar 18. mars 2023 14:07 Viðbragðsaðilum gekk vel í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra Snjóflóð féll í fjallshlíð suður af Ólafsfirði á fyrsta tímanum í dag með þeim afleiðingum að tveir úr hópi skíðafólks slösuðust. Björgunarsveitir eru mættar á vettvang ásamt þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.
Í uppfærðri tilkynningu á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að klukkan 12:27 hafi borist tilkynning um að snjóflóð hefði fallið í Brimnesdal við Ólafsfjörð, nánar tiltekið undir Kistufjalli. Upphaflega var talið að einn úr hópnum hefði fótbrotnað í snjóflóðinu. „Um tveimur klukkustundum eftir að útkall barst komust sjúkraflutningamenn til hópsins. Kom þá í ljós að annar skíðamaður var einnig lítilsháttar slasaður. Hlúð var að hinum slösuðu og búið um þau til flutnings. Voru þau flutt niður Brimnesdalinn og þar í sjúkrabíl sem flutti þau til Akureyrar. Þyrla LHG gat ekki aðhafst á slysavettvangi vegna veðurskilyrða en hún var kominn til Ólafsfjarðar áður en flutningur á hinum slösuðu til byggða hófst,“ segir í tilkynningu. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að björgunarsveitir frá Akureyri og Siglufirði hafi verið kallaðar út. Upp úr klukkan 15 hafi þær, ásamt sjúkraflutningamönnum, verið að ljúka við að búa um manninn til flutnings niður fjallið og verkjastilla hann. Nú sé verið að vinna í því að koma manninum niður. Þá segir hann að ekki hafi verið tilkynnt um að nokkur sé týndur í snjóflóðinu, aðeins að einn hafi slasast. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við Vísi að aðstæður séu erfiðar vegna lágrar skýjastöðu og lélegs skyggnis á svæðinu. Því hafi nokkur tími liðið áður en þyrlusveitin lagði af stað norður á meðan staðan var metin. Nú sé þyrlan hins vegar komin norður og hún verði til taks ef hennar verður þörf. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjallabyggð Landhelgisgæslan Björgunarsveitir Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Fleiri fréttir „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Jarðhræringar, sprengjuhótun og kíghósti Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Sjá meira