Skilorðsbundin refsing fyrir vörslu grófs teiknaðs barnakláms Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2023 18:17 Héraðsdómur Reykjavíkur Karlmaður var á dögunum dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa haft í vörslum sínum þónokkuð magn teiknaðs barnaníðsefnis. Í dómi segir að efnið hafi verið af afar grófu tagi.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm yfir manninum fimmtudaginn 19. janúar en dómurinn var birtur á vef héraðsdómstólanna í dag. Maðurinn var ákærður árið 2022 fyrir kynferðisbrot með því að hafa, um nokkurt skeið fram til loka árs 2019, haft í vörslum sínum á farsíma og fartölvu samtals 2.230 teiknaðar myndir og 42 teiknuð myndskeið sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Hann játaði brot sín skýlaust og fór fram á vægustu leyfilegu refsingu. Bætist við fyrra blygðunarsemisbrot Í dómi segir að maðurinn hafi árið 2020 verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot. Sakaferill hans hafi að öðru leyti ekki þýðingu við úrlausn málsins. Þá segir að brot það sem ákært var fyrir hafi verið framið áður en dómur gekk í fyrra málinu og því yrði manninum dæmdur hegningarauki sem samsvari þeirri þyngingu hegningarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu. Alvarlegt kynferðisbrot þrátt fyrir að um teiknaðar myndir hafi verið að ræða Í dómi segir að við ákvörðun refsingar hafi verið horft til þess að um væri að ræða alvarlegt brot sem teljist til kynferðisbrota. „Þrátt fyrir að um sé að ræða teiknaðar myndir og myndskeið ber að líta til þess að markmið refsinga fyrir vörslur á efni af þessu tagi, sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, er að styrkja vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun, m.a. í tengslum við gerð slíks efnis,“ segir í dómi. Játning mannsins var honum hins vegar metin til refsimildunar. Þá var einnig litið til þess að rannsókn málsins hafi fregist óhóflega hjá ákæruvaldinu af ástæðum sem manninum yrði ekki kennt um. Rannsókn stóð yfir með hléum frá október árið 2019 til janúar árið 2021 þegar seinni framburðarskýrsla mannsins var tekin. Ákæra var gefin út þann 8. nóvember árið 2022. Dæmdur til að leita sér hjálpar Sem áður segir var maðurinn dæmdur til fjögurra mánaða skilorðbundinnar fangelsisvistar. Þá segir í dómsorði að maðurinn skuli á skilorðstímanum, sem er tvö ár, sæta umsjón og fyrirmælum hjá úrræðinu Taktu skrefið eins og ástæða þykir til og ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Maðurinn var einnig dæmdur til að þola upptöku myndanna og myndskeiðanna, farsímans og fartölvunnar auk þess að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns 223 þúsund krónur og þóknun annars lögmanns, 84 þúsund krónur. Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur má lesa í heild sinni hér.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Reykjavík Klám Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Fleiri fréttir Einn í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Sjá meira