Jökullinn logaði í fyrsta U-21 árs landsleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2021 14:30 Jökull Andrésson lét vel í sér heyra í leiknum gegn Portúgal í gær. vísir/vilhelm Jökull Andrésson lék sinn fyrsta leik fyrir U-21 árs landsliðið í fótbolta í gær. Ísland tapaði þá fyrir Portúgal, 0-1, í undankeppni EM 2022.
Markvörðurinn átti mjög góðan leik í Víkinni í gær en því miður var sömu sögu að segja af kollega hans í marki Portúgals, Celton Biai. Jökull varði alls sjö skot í leiknum í gær en átti litla möguleika þegar Fábio Vieira skoraði eina mark leiksins á 55. mínútu. Í uppbótartíma gerði Jökull sér ferð fram í aukaspyrnu íslenska liðsins. Hann átti skalla og í kjölfarið voru Íslendingar nálægt því að skora. Það tókst hins vegar ekki, Portúgalir brunuðu fram og skoruðu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Vörslur Jökuls og færi Íslendinga undir lok leiks í gær má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Vörslur Jökuls gegn Portúgal Mosfellingurinn kvaðst ánægður með eigin frammistöðu þótt hann hefði að sjálfsögðu viljað uppskera meira fyrir hana. „Persónulega fannst mér sjálfum mér ganga bara mjög vel. Eina sem okkur langaði í dag var að vinna og mér fannst við óheppnir,“ sagði Jökull við Vísi eftir leikinn. Hann sat á bekknum fyrir Elías Rafn Ólafsson í síðustu landsleikjahrinu. Elías var hins vegar valinn í A-landsliðið að þessu sinni og lék báða leiki þess í undankeppni HM 2022. Því fékk Jökull langþráð tækifæri með U-21 árs landsliðinu í gær. Og hann ætlar að halda sæti sínu í liðinu. „Auðvitað velur Davíð [Snorri Jónasson, þjálfari U-21 árs landsliðsins] bara markmanninn sem hann langar að velja en ég ætla bara að gera mitt allra besta til að halda mér í þessu liði. Þetta er þar sem ég vil vera núna, mig langar að spila með þessum strákum þetta eru allt bestu vinir mínir. Það eina sem ég er að stefna á núna er að halda áfram að spila með þessu liði og við sjáum svo bara hvað gerist í framtíðinni.“ Klippa: Viðtal við Jökul Jökull, sem er tvítugur, hefur verið á mála hjá Reading síðan 2017 en leikur núna sem lánsmaður með Morecambe í ensku C-deildinni. Hann hefur einnig leikið á láni hjá Hungerford Town og Exeter City. Bróðir Jökuls, Axel Óskar, lék átján leiki með U-21 árs landsliðinu á sínum tíma og á tvo A-landsleiki á ferilskránni. Hann leikur með Riga í Lettlandi.
Tengdar fréttir Davíð Snorri: „Megum ekki detta í það að sætta okkur við að tapa“ Davíð Snorri Jónasson, þjálfari Íslenska U21 árs landsliðs karla, var svekktur eftir 1-0 tap gegn sterku liði Portúgals á Víkingsvelli í dag. 12. október 2021 17:43 Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Portúgal 0-1 | Naumt tap í hörkuleik Íslenska landsliðið skipað leikmönnum undir 21 árs spilaði sinn þriðja leik í undankeppni EM U21 gegn Portúgal á Víkingsvelli í dag. Íslenska liðið spilaði góðan leik en uppskáru engin stig en leiknum lauk með 0-1 sigri Portúgals. 12. október 2021 18:27 Mest lesið Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Íslenski boltinn Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Körfubolti „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Fleiri fréttir Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið „Við erum helvíti seigir“ Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Fimm marka föstudagur hjá Inter Rúnar og félagar tryggðu sér titilinn með endurkomusigri Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Andri skoraði og er markahæstur í Danmörku Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Draumagengi Guðrúnar heldur áfram Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Cole Palmer valinn bestur í apríl Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Óskar verði sjálfur að svara fyrir ákvörðun sína Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Hóta því að lögsækja FIFA Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Sveindís hafði betur gegn Glódísi Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Evrópudraumur Aston Villa úti Atalanta og Leverkusen í úrslit Evrópudeildarinnar Sjá meira
Davíð Snorri: „Megum ekki detta í það að sætta okkur við að tapa“ Davíð Snorri Jónasson, þjálfari Íslenska U21 árs landsliðs karla, var svekktur eftir 1-0 tap gegn sterku liði Portúgals á Víkingsvelli í dag. 12. október 2021 17:43
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Portúgal 0-1 | Naumt tap í hörkuleik Íslenska landsliðið skipað leikmönnum undir 21 árs spilaði sinn þriðja leik í undankeppni EM U21 gegn Portúgal á Víkingsvelli í dag. Íslenska liðið spilaði góðan leik en uppskáru engin stig en leiknum lauk með 0-1 sigri Portúgals. 12. október 2021 18:27