Einkunnir Íslands: Kantmennirnir í stuði og dúndur innkoma bræðranna Íþróttadeild skrifar 11. október 2021 21:02 Albert Guðmundsson skoraði úr tveimur vítaspyrnum gegn Liechtenstein. vísir/vilhelm Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vann stórsigur á Liechtenstein, 4-0, í síðasta heimaleik sínum í undankeppni HM 2022 í kvöld.
Albert Guðmundsson skoraði úr tveimur vítaspyrnum og Stefán Teitur Þórðarson og Andri Lucas Guðjohnsen gerðu sitt markið hvor. Sá síðastnefndi skoraði eftir sendingu bróður síns, Sveins Arons, sem átti afar góða innkomu, lagði upp mark og fiskaði vítaspyrnu. Albert og Stefán Teitur léku vel sem og Jón Dagur Þorsteinsson á vinstri kantinum. Aðrir stóðu svo fyrir sínu þótt andstæðingurinn hafi vissulega ekki verið burðugur. Ísland er áfram í fimmta og næstneðsta sæti J-riðils undankeppninnar en nú með fimm stig. Einkunnagjöf Vísis fyrir leikinn má sjá hér fyrir neðan. Byrjunarliðið: Elías Rafn Ólafsson, markvörður 6Hélt hreinu í sínum öðrum landsleik. Hafði ekkert að gera og þurfti örsjaldan að snerta boltann. Var líklegast orðið skítkalt undir lokin. Alfons Sampsted, hægri bakvörður 6Eyddi nánast öllum leiknum á vallarhelmingi Liechtenstein og var nokkuð ógnandi. Átti nokkrar góðar fyrirgjafir. Spennandi verður að sjá hvort Alfons haldi sæti sínu í byrjunarliðinu í næstu landsleikjum. Brynjar Ingi Bjarnason, miðvörður 6Öruggur í öllum sínum aðgerðum og svalur með boltann. Mun samt spila fáa jafn auðvelda landsleiki. Daníel Leó Grétarsson, miðvörður 6Kom inn í byrjunarliðið í stað Hjartar Hermannssonar. Fór meiddur af velli eftir rúman hálftíma. Hafði ekkert að gera í vörninni fram að því. Guðmundur Þórarinsson, vinstri bakvörður 6Yfirvegaður með boltann og tengdi vel við Jón Dag á vinstri kantinum. Hafði það náðugt í varnarleiknum. Birkir Bjarnason, miðjumaður 7Fyrirliðinn var alltaf frír á miðjunni, fékk mikinn tíma og átti eflaust flestar sendingar allra á vellinum. Hóf flestar sóknir íslenska liðsins og skipti boltanum vel á milli kanta. Reynsla hans kom í góðar þarfir í ungu byrjunarliði. Stefán Teitur Þórðarson, miðjumaður 7Fékk tækifæri í fyrsta sinn í keppnisleik með landsliðinu og greip gæsina. Kom Íslandi á bragðið þegar hann skilaði sér inn á vítateig Liechtenstein á 19. mínútu og skallaði fyrirgjöf Jóns Dags í netið. Skagamaðurinn var kraftmikill og duglegur og er eflaust búinn að vinna sér inn fleiri tækifæri með landsliðinu. Þórir Jóhann Helgason, miðjumaður 6Var í byrjunarliðinu í þriðja landsleiknum í röð. Boltinn flaut vel í gegnum Þóri en hann átti ekki margar afgerandi sendingar á síðasta þriðjungnum. Albert Guðmundsson, hægri vængmaður 7Skoraði af öryggi úr tveimur vítaspyrnum, sín fyrstu mörk fyrir landsliðið á Laugardalsvelli. Fékk mikið frjálsræði og nýtti það vel. Var ógnandi og skapandi, sérstaklega í seinni hálfleik. Jón Dagur Þorsteinsson, vinstri vængmaður 7Líflegur og átti nokkrar eitraðar fyrirgjafir. Ein þeirra skilaði sér á Stefán Teit þegar hann kom Íslandi yfir. Jón Dagur var sennilega besti leikmaður Íslands í þessari landsleikjahrinu og er búinn að stimpla sig inn í byrjunarliðið. Viðar Örn Kjartansson, framherji 5Fékk tækifæri í byrjunarliðinu annan leikinn í röð en nýtti það ekki vel. Fiskaði vítið en fór illa gott færi í upphafi seinni hálfleiks. Lítið með í spilinu. Líklega kominn aftur fyrir Guðjohnsen-bræðurna í goggunarröðinni í sókninni. Varamenn: Hjörtur Hermannsson kom inn á fyrir Daníel Leó á 31. mínútu 6Hafði ekkert fyrir hlutunum í vörninni eftir að hann kom inn á fyrir Daníel Leó eftir rúman hálftíma. Nokkrar slakar sendingar en fátt til að kvarta yfir. Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á fyrir Viðar Örn á 65. mínútu 7Kröftug innkoma hjá Sveini Aroni sem nýtti sínar mínútur vel. Gerði vel þegar hann fiskaði seinna vítið og las leikinn svo vel og var óeigingjarn þegar hann lagði upp markið fyrir bróður sinn. Mikael Egill Ellertsson kom inn á fyrir Jón Dag á 65. mínútu 6Lét einu sinni reyna á Benjamin Büchel í marki Liechtenstein en hafði sig annars ekki mikið í frammi í sínum öðrum landsleik. Andri Fannar Baldursson kom inn á fyrir Þóri Jóhann á 65. mínútu 6Átti sendinguna á Svein Aron þegar hann sótti seinna vítið og svo forstoðsendingu í fjórða markinu. Fínasta innkoma hjá Andra. Andri Lucas Guðjohnsen kom inn á fyrir Stefán Teit á 80. mínútuGerði sitt annað mark í fjórða landsleiknum þegar hann skoraði með góðu skoti eftir undirbúning bróður síns. Spilaði ekki nóg til að fá einkunn.
HM 2022 í Katar Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Sjá meira