Sara tilnefnd í lið ársins í Evrópu

Sara Björk Gunnarsdóttir hefur átt magnað ár.
Sara Björk Gunnarsdóttir hefur átt magnað ár. Ljósmynd/Bildbyrån

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, kemur til greina í lið ársins hjá UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Sara átti afar gott ár og varð m.a. Evrópumeistari með franska liðinu Lyon eftir að hún gekk í raðir þess frá Wolfsburg.

Sara er ein af fimmtán miðjumönnum sem koma til greina en kosningin fer fram á heimasíðu UEFA. Sara vann þýsku deildina og bikarinn með Wolfsburg og hjálpaði liðinu að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en skoraði svo gegn því í úrslitaleiknum með Lyon.

Hægt er að kjósa Söru með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert