Heimila samrunann en setja spurningarmerki við yfirráð í Síldarvinnslunni Eiður Þór Árnason skrifar 25. febrúar 2021 17:13 Bæði Huginn og Bergur-Huginn gera út frá Vestmannaeyjum. Vísir/Vilhelm Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna dótturfélags Síldarvinnslunnar hf. og Bergs ehf. en greint var frá því í október að Bergur-Huginn ehf. hafi fest kaup á útgerðarfélaginu Bergi í Vestmannaeyjum.
Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er sú að kaupin leiði ekki til þess að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist eða samruninn leiði til þess að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Er þar meðal annars horft til þess að hlutdeild Bergs í heildarúthlutun kvóta er óveruleg, að því er fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins. Bergur hefur gert út togarann Berg VE 44 frá árinu 2005 og eru aflaheimildir félagsins 0,36 prósent af heildarkvóta á fiskveiðiárinu 2020-2021 eða sem nemur 1.514 þorskígildistonnum. Rýndu í þétt tengsl félaganna Sem hluti af rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samrunanum var upplýsinga og sjónarmiða aflað um stjórnunar-, eignar- og viðskiptatengsl samstæðu Síldarvinnslunnar við Samherja hf. og Gjögur hf. en samanlagt eiga félögin og tengdir aðilar 82 prósent í Síldarvinnslunni. Þá eru þrír af fimm stjórnarmönnum Síldarvinnslunnar skipaðir af eða tengdir þessum aðilum. „Til viðbótar framangreindu eru vísbendingar um þétt stjórnunar- og eignatengsl milli Samherja, Gjögurs og Síldarvinnslunnar sem birtast m.a. í því að einn af stærstu eigendum Gjögurs hefur þar til nýverið gegnt starfi forstjóra Samherja, samhliða því að eiga eignarhlut í Síldarvinnslunni í gegnum eignarhaldsfélag sem jafnframt er í eigu Samherja. Þetta ásamt fleiru gefur til kynna veruleg tengsl á milli stórra hluthafa í Síldarvinnslunni,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Þá hafi samrunaaðilar gert grein fyrir áframhaldandi og viðvarandi viðskiptasambandi við Síldarvinnsluna, Samherja og Gjögur. Tóku ekki endanlega afstöðu „Af hálfu samrunaaðila er byggt á því að Síldarvinnslan muni við kaupin fara ein með yfirráð yfir Bergi, en í þeirri afstöðu felst að samrunaaðilar telja að ekki hafi stofnast til yfirráða stórra eigenda Síldarvinnslunnar yfir fyrirtækinu, sem tilkynna beri Samkeppniseftirlitinu,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Að sögn stofnunarinnar fela áðurnefndar upplýsingar þó í sér vísbendingar um að stofnast hafi til yfirráða í Síldarvinnslunni umfram það sem samrunaaðilar hafi gert grein fyrir. Þrátt fyrir það tekur eftirlitið ekki endanlega afstöðu til þess. Ástæðan fyrir því er að það telur ekki forsendur til íhlutunar í samrunann þótt að komist væri að niðurstöðu um hin mögulegu víðtækari yfirráð. „Í öðru lagi myndi endanleg úrlausn framangreindra yfirráða kalla á víðtækari gagnaöflun og rannsókn sem taka myndi til fleiri aðila. Ekki eru tök á því í þessu máli,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Hyggst stofnunin á síðari stigum taka afstöðu til þess hvort og þá með hvaða hætti beri að rannsaka nánar möguleg yfirráð og eftir atvikum samstarf hlutaðeigandi fyrirtækja. Sameina félögin á ný Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að saga Bergs og Bergs-Hugins sé samofin en stofnendur Bergs komu að stofnun þess síðarnefnda árið 1972. Árið 1983 dróg einn stofnenda sig svo út úr félaginu og hélt áfram útgerð undir merkjum Bergs. Bæði útgerðarfélögin gera út frá Vestmannaeyjum en árið 2012 festi Síldarvinnslan kaup á Bergi-Hugin sem rennur nú saman við Berg á ný. Að sögn Gunnþórs B. Ingvasonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar eru kaupin liður í að styrkja stoðir félagsins í Vestmannaeyjum. Síldarvinnslan stefnir nú á skráningu félagsins í Kauphöll Íslands.
Vestmannaeyjar Sjávarútvegur Samkeppnismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Sjá meira