Innlent

Ráðherra gagnrýnir óvægna og ósanngjarna umræðu í garð Pólverja

Snorri Másson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson segir mikilvægt að íbúum Íslands sé ekki mismunað í tengslum við Covid-19, hvorki af pólskum né af öðrum erlendum uppruna.
Guðlaugur Þór Þórðarson segir mikilvægt að íbúum Íslands sé ekki mismunað í tengslum við Covid-19, hvorki af pólskum né af öðrum erlendum uppruna. Vísir/Vilhelm

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að ekki verði liðið að fólki sé mismunað hér á landi á grundvelli aukinnar smithættu frá tilteknum löndum eins og Póllandi.

Hann telur faraldurinn hafa kallað fram neikvæða eiginleika í fari Íslendinga, eins og „óvægna og ósanngjarna“ umræðu um Pólverja sem ráðherra vísar til.

Guðlaugur átti fund með sendiherra Póllands á Íslandi, sem lét í ljós áhyggjur af neikvæðri umræðu í garð Pólverja.

Nokkuð hefur verið rætt um að Pólverjar séu þeir sem tíðast ferðist til og frá landinu þessi dægrin og að sá hópur sé þar með sá sem er líklegastur til að bera veiruna inn í samfélagið. Útbreiðsla veirunnar er enda veruleg í heimalandinu.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Gerard Pokruszyńskim sendiherra Póllands á Íslandi.Stjórnarráðið

Guðlaugur segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að ásakanir sérstaklega í garð Pólverja standist ekki enda fari kórónuveiran ekki í manngreinarálit.

„Faraldurinn hefur kallað fram marga góða eiginleika í fari þjóðarinnar en líka slæma. Einn þeirra er smitskömmunin, sem á undanförnum vikum hefur beinst að íbúum landsins af erlendum uppruna. Við getum ekki liðið að fólki sé mismunað á slíkum grundvelli enda fer veiran ekki í manngreinarálit.

Pólska samfélagið hér á landi hefur bæði auðgað þjóðlífið og átt ríkan þátt í skapa hagsæld undanfarinna ára og umræða undanfarinna daga í þess garð er bæði óvægin og ósanngjörn,“ segir Guðlaugur Þór.

Um tuttugu þúsund Pólverjar eru búsettir á Íslandi og eru þeir langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. 

Komið hefur fram í gögnum sóttvarnalæknis að af heildarfjölda þeirra sem greinast í fyrri sýnatöku á landamærum er fólk með pólskt ríkisfang tæplega 44 prósent. Þetta gilti á tímabilinu 20. ágúst til 20. nóvember í fyrra. Hlutfall fólks með íslenskt ríkisfang var tæplega 19 prósent og um tvö prósent einstaklinga með litháískt ríkisfang.


Tengdar fréttir

Nýjar reglur taka gildi á landamærum

Á morgun taka gildi nýjar reglur á landamærum sem kveða á um bann við ónauðsynlegum ferðum frá hááhættusvæðum. Það er dómsmálaráðherra sem setur reglugerðina um bann við ónauðsynlegum ferðalögum sem gildir út maí.

Heildarfjárhæð sekta vegna brota tæpar sex milljónir

Heildarfjárhæð sekta vegna brota á sóttvarnalögum frá því kórónuveirufaraldurinn hófst hér á landi nemur tæpum sex milljónum króna. Tæp 70 prósent grunaðra eru karlar og rúm 30 prósent konur á aldrinum 25 til 34 ára. Flest brotin tengjast ferðalögum yfir landamærin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×