Missti stjórn á ökutækinu og keyrði á

Khloe Kardashian og Lamar Odom voru gift frá 2009 til …
Khloe Kardashian og Lamar Odom voru gift frá 2009 til 2013, en samband þeirra var sannarlega enginn dans á rósum. AFP

Fyrr­ver­andi körfu­bol­takapp­inn Lam­ar Odom slapp furðu vel þegar hann missti stjórn á öku­tæki sínu, hvít­um Mercedes Benz, og keyrði á tvo kyrr­stæða bíla snemma morg­uns í síðustu viku. 

TMZ grein­ir frá því að Odom hafi verið á heim­leið frá vini sín­um í Nor­hridge í Kali­forn­íu um þrjú­leytið þegar hann hafi misst farsím­ann sinn. Þegar hann hafi teygt sig eft­ir sím­an­um hafi hann hins veg­ar misst stjórn á bíln­um og keyrt á bíl­ana tvo.

Odom hef­ur oft lent í vand­ræðum vegna áfeng­is- og fíkni­efna­vanda, en hann fannst meðvit­unda­laus í vænd­is­húsi í októ­ber 2015 og lá lengi á sjúkra­húsi og var vart hugað líf. Fram kem­ur að lög­regl­an hafi spurt Odom hvort hann hafi keyrt und­ir áhrif­um áfeng­is eða fíkni­efna sem hann neitaði. 

Eng­in slys urðu á fólki, en eins og sjá má á mynd­um sem birt­ust á TMZ varð öku­tæki Odoms fyr­ir þó nokkr­um skemmd­um og sömu­leiðis bíl­arn­ir tveir sem hann keyrði á. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Nú er rétt að taka aftur til við verk, sem þú slóst á frest fyrir nokkru. Leyfðu tilfinningunum að flæða óhindrað í stað þess að láta sem ekkert sé.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Nú er rétt að taka aftur til við verk, sem þú slóst á frest fyrir nokkru. Leyfðu tilfinningunum að flæða óhindrað í stað þess að láta sem ekkert sé.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren