„Ég er enginn lögmaður Lovren í þessu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júní 2021 20:30 Lovren fór oftar en einu sinni og oftar en tvisvar yfir atvikið með dómara leiksins. Pool/Getty Images/Petr Josek Tékkar fengu umdeilda vítaspyrnu í 1-1 jafntefli þeirra við Króata á Evrópumótinu í fótbolta í dag. Atvikið var tekið fyrir af sérfræðingum Stöðvar 2 Sport þar sem skoðanir voru skiptar.
Tékkar komust yfir í leiknum á 37. mínútu þegar Patrik Schick skoraði úr vítaspyrnunni umræddu. Aðdragandi hennar var sá að Schick stökk upp í skallabolta ásamt Dejan Lovren, varnarmanni Króata, þar sem olnbogi Lovrens fór í andlit Schicks, en nokkuð ljóst virtist vera að ekki væri um viljaverk af hendi þess króatíska að ræða. Carlos del Cerro Grande, spænskur dómari leiksins, var kallaður að VAR-skjánum og dæmdi víti. Schick lá blóðugur eftir og þurfti að gera að sárum hans áður en hann gat stigið á punktinn. „Fyrir utan það að afleiðingin er vítaspyrna sem þeir skora úr, þá er alveg klárt að þetta setur Króatana úr jafnvægi, og þeir fara svolítið í fórnarlambið. Í hálfleik eru þeir enn að ræða þetta við dómarann.“ segir Ólafur Kristjánsson um atvikið. „Þetta voru nokkur örnámskeið í því hvernig á að fara upp í skallabolta sem Lovren veitti dómaranum.“ segir þáttastjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson, sem bendir svo á að Patrik Schick hafi legið alblóðugur eftir og spyr þá hvort það sé ekki ákveðin vísbending að um brot hafi verið að ræða. „Þú segir þá að ef hann hefði ekki orðið blóðugur eftir sama höggið, að þá eru minni líkur á að það hefði verið dæmt víti?“ spyr Ólafur þá áður en hann bætir við: „Nú kemur þú úr annarri íþrótt, körfubolta, þar sem eru ekki líkar reglur. Hvað máttu þegar þú ferð upp í frákast, hvar má hafa hendurnar? Það er óeðlilegt að hoppa upp í skallabolta með hendur niður með síðum. Ég er enginn lögmaður Lovren í þessu, en þetta er hans upplifun, sem hann reynir að færa rök fyrir, sem er að Schick kemur aftan að honum.“ „Hvort fer höndin aftur á bak í höfuðið á Schick eða höfuðið á Schick í olnbogann á Lovren? Þetta er á grensunni og það skemmtilega við fótboltann er að við sitjum og ræðum þessa hluti og erum ekki sammála,“ segir Ólafur. Atvikið og umræðuna um það má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Víti Tékka
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Handbolti Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp Fótbolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Handbolti Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Breiðablik - Stjarnan | Hafa unnið fyrstu þrjá leikina sína 3-0 Í beinni: Keflavík - Valur | Botnliðið tekur á móti meisturunum Í beinni: FH - Þróttur | Tapliðið mun sitja í fallsæti Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Sjá meira