Fjöldi einstaklinga í transteymi jókst

Frá gleðigöngunni árið 2015.
Frá gleðigöngunni árið 2015. Ljósmynd/Júlíus Sigurðsson.

Fjöldi einstaklinga í transteymi Landspítala jókst á síðasta ári um 26 og hærra hlutfall umsókna stúlkna og kvenna um alþjóðlega vernd en karla og drengja var samþykkt.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í kynlegum tölum, samantekt Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu á ýmsum tölfræðingum upplýsingum en bæklingur með tölulegum upplýsingum um kyn og margbreytileika í borginni var gefinn út í ellefta sinn í ár.

Segir í tilkynningu að í ár hafi sjónum verið beint að innflytjendum og málefnum hinsegin fólks.

Fleiri karlar sóttu um alþjóðlega vernd

Kemur fram í tölunum að árið 1998 voru konur 1.694 innflytjenda í Reykjavík en karlar 1.224 miðað við árið 2021 þar sem konur voru 11.482 og karlar 14.187. Þetta nemur 578% fjölgun á meðal kvenna og 1059% fjölgun á meðal karla og breytingu á kynjahlutföllum. 

Árið 2021 voru 49% umsókna kvenna um alþjóðlega vernd samþykktar en 39% umsókna karla. Á sama tíma voru 54% umsókna stúlkna samþykktar en 48% umsókna drengja. Talsvert fleiri umsóknir karla bárust eða 375 á meðan 197 konur sóttu um alþjóðlega vernd.  

„Hlutfallslegt atvinnuleysi eftir ríkisfangi í mars 2019, 2020, 2021 og 2022 var talsvert hærra hjá einstaklingum með erlent ríkisfang en þeim sem voru með íslenskt ríkisfang. Í mars 2022 var atvinnuleysi meðal fólks með erlent ríkisfang 8% eða fjórfalt hærra en meðal fólks með íslenskt ríkisfang sem var 1,8%.“

Þá fór fjöldi einstaklinga í þjónustu við transteymi fullorðinna hjá Landspítala frá því að vera 49 árið 2018 í að vera 75 árið 2021. Árið 2022 höfðu 56 starfsstaðir Reykjavíkurborgar fengið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar sem byrjað var að veita árið 2020.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert