Fyrsta prófkjörið hjá Viðreisn

Pawel Bartoszek og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.
Pawel Bartoszek og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Reykjavíkurráð Viðreisnar hefur ákveðið að halda prófkjör til að velja á lista flokksins fyrir næstkomandi sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík.

Þetta verður í fyrsta sinn sem flokkurinn heldur prófkjör til að velja á listann í stað uppstillingar, sem hefur verið meginreglan til þessa.  

Á félagsfundi ráðsins í gærkvöldi var einnig kjörin uppstillingarnefnd og kjörstjórn. Kjörstjórn mun fljótlega leggja fram tillögu um hvenær prófkjörið verði haldið og fjölda sæta sem kosið verður um. Prófkjör þarf að auglýsa með a.m.k. 30 daga fyrirvara. Þá þurfa áhugasamir að tilkynna þátttöku sína a.m.k. 15 dögum fyrir prófkjörið, að því er kemur fram í tilkynningu. 

Samkvæmt nýsamþykktum reglum Viðreisnar um prófkjör eru kjörgengir allir félagsmenn sem eru 18 ára á kjördag sveitarstjórnarkosninga, 14. maí nk., sem búa í Reykjavík og hafa verið skráðir félagar í Viðreisn að minnsta kosti 15 dögum fyrir prófkjörsdag. 

Viðreisn í Reykjavík hefur tvo borgarfulltrúa í dag, þau Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur og Pawel Bartoszek. Varaborgarfulltrúar eru Diljá Ámundadóttir Zoëga og Geir Finnsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert