Háskólinn University of South Florida í Bandaríkjunum vinnur að því að opna rafíþróttaaðstöðu innan skólans. Mun aðstaðan bera nafnið Esports Living Lab.
Aðstaðan mun innihalda fjörutíu tölvur og verður staðsett á háskólasvæði skólans. Verður aðgengi að aðstöðunni frítt alla nemendur sem búa á háksólalóðum skólans.
„Við vonum að opnun rafíþróttaaðstöðunnar í skólanum leiði nemendur með svipuð áhugamál saman,“ er haft eftir Antonio Gonzales sem starfar við íþróttadeild skólans.
Nám við skólann í íþrótta- og skemmtanastjórnun er þriðja besta nám sinnar tegundar meðal háskóla í Bandaríkjunum.
„Mörg þeirra starfa sem við þjálfum nemendur okkar í tengjast rafíþróttum,“ er haft eftir Michelle Harolle sem starfar við íþrótta- og skemmtanastjórnunardeild skólans. Býður skólinn einnig uppá fög sem tengjast viðskiptum í rafíþróttum.