Besta upphitunin: Fyrirliði Vals hrósaði umgjörðinni hjá Aftureldingu í hástert Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2022 16:00 Kristín Þóra Birgisdóttir og Elísa Viðarsdóttir voru gestir Bestu upphitunarinnar. stöð 2 sport Helena Ólafsdóttir fékk fyrirliða Vals og Aftureldingar í heimsókn til að hita upp fyrir 4. umferð Bestu deildar kvenna sem fer af stað á morgun.
Bæði Valur og Afturelding eiga mikilvæga leiki annað kvöld. Íslandsmeistarar Vals sækja Stjörnuna heim á meðan Afturelding sækir Keflavík heim. Elísa Viðarsdóttir kom Val á bragðið í 3-0 sigrinum á Keflavík í síðustu umferð. Valskonur sneru þar vörn í sókn eftir tapið fyrir Þór/KA, 2-1, í 2. umferðinni. Valur er í 2. sæti deildarinnar með sex stig, einu stigi á eftir toppliði Selfoss. „Deildin hefur farið skemmtilega af stað og óvænt úrslit í bland við viðbúin úrslit. Það er skemmtilegt að fá Selfoss á toppnum eftir þrjár umferðir,“ sagði Elísa sem hefur þó engan áhuga á að sjá Selfyssinga á toppnum mikið lengur. Kristín Þóra Birgisdóttir og stöllur hennar í Aftureldingu eru aftur á móti án stiga í 9. sæti deildarinnar. Undirbúningstímabilið byrjaði vel hjá Mosfellingum en meiðsli hafa sett stórt strik í reikning nýliðanna. Til að bregðast við því fékk Afturelding þrjá leikmenn á lokadegi félagaskiptagluggans; miðjumanninn Alexöndru Soree frá Breiðabliki og framherjann Sólveigu Jóhannesdóttur Larsen og markvörðinn Auði Sveinbjörnsdóttur Scheving frá Val. Klippa: Besta upphitunin fyrir 4. umferð „Þetta var ekki draumabyrjunin hjá okkur. Við fengum á okkur mörk bara á fyrstu mínútunum og það er högg fyrir liðið. Við erum nýjar í þessari deild og kannski ekki alveg vanar þessu. En mér finnst við vera að koma til og finna hvernig stemmningin er,“ sagði Kristín. Hún segir stemmninguna í Mosfellsbæ góða og áhugann fyrir liðinu mikinn. „Það hafa rosa margir komið á leikina og stemmning fyrir að byrja mótið hjá okkur. Fólk er hvatt til að mæta á leiki og sett vinna í það, að við fáum smá athygli,“ sagði Kristín. Elísa segir að stemmningin í Mosfellsbænum og umgjörðin í kringum lið Aftureldingar hafi ekki farið fram hjá henni. „Maður finnur það sterkt, standandi fyrir utan liðið þeirra, að það er svo mikið af sjálfboðaliðum. Auðvitað erum við öll ofboðslega þakklát fyrir okkar sjálfsboðaliða sem sjást alltof sjaldan en maður finnur sérstaklega fyrir því í Mosó. Sjálfboðaliðarnir standa þétt við bakið á ykkur og þá myndast þessi gagnkvæma virðing. Ég get ímyndað mér að stelpurnar vilji leggja sig allar fram fyrir félagið þegar þær sjá hvernig starfið er unnið.“ Bestu upphitunina fyrir 4. umferðina má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Leikirnir í 4. umferð
Besta deild kvenna Bestu mörkin Afturelding Valur Mest lesið Kelce framlengir og verður launahæsti innherji sögunnar Sport „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ Körfubolti Lopetegui tekur við AC Milan Fótbolti Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta Fótbolti „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Íslenski boltinn „Skákin er bara byrjuð“ Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Fótbolti „Það er mikill efniviður í Fram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum „Við þurfum að þekkja okkar vitjunartíma og taka færin“ Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora „Við erum ekki að fara rúlla yfir eitt eða neitt mót“ Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn