Pep spenntur að taka á móti „goðsögninni“ Vincent Kompany Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. mars 2023 13:16 Pep Guardiola og Vincent Kompany mætast í fyrsta skipti sem þjálfarar í dag. Victoria Haydn/Manchester City FC via Getty Images Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, kveðst spenntur fyrir því að taka á móti „einni mestu goðsögn sem hann hefur þjálfað“ þegar lærisveinar Vincents Kompany í Burnley mæta á Etihad völlinn í átta liða úrslitum FA-bikarsins síðar í dag.
Kompany lék stærstan hluta ferilsins með Manchester City, en han lék með félaginu í ellefu ár og var fyrirliði liðsins til fjölda ára. Á tíma sínum með City vann Kompany ensku deildina fjórum sinnum, FA-bikarinn tvisvar og enska deildarbikarinn fjórum sinnum. „Hann var ótrúleg persóna þegar hann var hér. Hann er ein mesta goðsögn sem ég hef þjálfað,“ sagði Pep um sinn fyrrum leikmann fyrir leik City og Burnley sem fram fer í dag, en grínaðist einnig með að það væri slæmt að mæta sínum fyrrum leikmönnum á hliðarlínunni. „En ég hef smá áhyggjur. Af því að þegar þú ert farinn að mæta þínum fyrrverandi leikmönnum á hliðarlínunni þá fer maður að átta sig á því hvað maður er orðinn gamall,“ sagði hinn 52 ára gamli þjálfari léttur. Pep Guardiola and Vincent Kompany will meet for the first time ever as managers 🤩 pic.twitter.com/RDPuz9UXk7— GOAL (@goal) March 18, 2023 Kompany hefur náð frábærum árangri sem þjálfari eftir að takkaskórnir fóru á hilluna. Hann hóf þjálfaraferilinn sem spilandi þjálfari hjá uppeldisfélagi sínu Anderlecht í Belgíu árið 2019 og snéri sér svo alfarið að þjálfun ári síðar. Hann tók við Burnley fyrir yfirstandandi tímabil og félagið trónir nú á toppi ensku B-deildarinnar með 13 stiga forskot þegar níu umferðir eru eftir. Liðið er einnig með 19 stiga forskot á Middlesbrough sem situr í þriðja sæti deildarinnar og Burnley nægir því níu stig í viðbót til að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City og Burnley mætast í FA-bikarnum klukkan 17:45 í dag og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Hristir hausinn yfir glórulausum og smásálarlegum ummælum Körfubolti Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Fleiri fréttir Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Tevez fluttur á spítala vegna brjóstverkja Þjálfari hljóp inn á, var rekinn út af og reyndi að faðma dómara Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Sjá meira