Fleiri sýni tekin í Tröllaskagahólfi en ekki grunur um smit á fleiri bæjum Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 26. október 2020 12:05 Svo gæti farið að fella þurfi um þrjú þúsund kindur í Tröllaskagahólfi. Vísir/Vilhelm
Enn er óvíst hvort grunur sem vaknaði um riðusmit á fleiri bæjum í Tröllaskagahólfi hafi reynst á rökum reistur en eins og greint var frá fyrir helgi er talið líklegt að sjúkdóminn sem fyrst greindist á bænum Stóru Ökrum sé einnig að finna á þremur öðrum bæjum á svæðinu. Enn er beðið eftir niðurstöðum úr sýnatöku á þremur bæjum í Tröllaskagahólfi þar sem grunur leikur á riðusmiti. Héraðsdýralæknir segir fleiri sýni hafa verið send til rannsóknar, þótt ekki sé rökstuddur grunur um frekara smit. Allur sé þó varinn góður. Betra að hafa vaðið fyrir neðan sig Héraðsdýralæknir Norðurlands, Jón Kolbeinn Jónsson, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að ekki sé von á niðurstöðum frá rannsóknarstöðinni að Keldum fyrr en seint á morgun. Fleiri sýni hafa að sögn Jóns einnig verið send en þó vildi hann ekki ganga svo langt að segja að þar sé grunur um smit. Betra sé að hafa vaðið fyrir neðan sig og láta greina meira en minna. Að sögn Jóns hafa bændur margir haft samband og lýst áhyggjum af því að smit gæti leynst í gripum þeirra, en oft sé um eitthvað annað að ræða en riðu. Menn séu meira á varðbergi nú, eftir að riðusmitið kom upp. Að sögn Jóns búa menn sig nú undir að niðurstaðan úr sýnatökunni frá bæjunum þremur verði jákvæð og reyna nú að koma höndum á gripi sem hafi verið fluttir af þeim bæjum og á aðra í sveitinni. Niðurskurður enn ekki hafinn Niðurskurður er ekki hafinn á Stóru Ökrum þar sem sjúkdómurinn greindist fyrst og segir Jón Kolbeinn að fyrirskipun um slíkt hafi enn ekki borist. Ef svo fer, að riða finnist á hinum bæjunum þremur, þá er útlit fyrir að það þurfi að fella um þrjú þúsund kindur og lömb. Bæirnir eru allir í Tröllaskagahólfi og segir Jón Kolbeinn allt gert til að hefta frekari útbreiðslu.
Riða í Skagafirði Landbúnaður Skagafjörður Dýraheilbrigði Tengdar fréttir „Alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin“ Bóndinn á Grænumýri í Skagafirði þar sem sterkur grunur leikur á riðusmiti hefur enga von um að endanleg niðurstaða sýnatöku leiði annað í ljós. 24. október 2020 16:23 „Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01 Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23. október 2020 16:15 Riðuveikin mikið reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið Bændur í Skagafirði bíða nú milli vonar og ótta eftir niðurstöðum úr sýnatöku eftir að riða greindist í ær á Stóru-Ökrum á dögunum. Sveitarstjórinn segir málið vera mikið högg og reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið. 23. október 2020 14:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Fleiri fréttir Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Sjá meira
„Alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin“ Bóndinn á Grænumýri í Skagafirði þar sem sterkur grunur leikur á riðusmiti hefur enga von um að endanleg niðurstaða sýnatöku leiði annað í ljós. 24. október 2020 16:23
„Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01
Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23. október 2020 16:15
Riðuveikin mikið reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið Bændur í Skagafirði bíða nú milli vonar og ótta eftir niðurstöðum úr sýnatöku eftir að riða greindist í ær á Stóru-Ökrum á dögunum. Sveitarstjórinn segir málið vera mikið högg og reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið. 23. október 2020 14:23