Sport

Katrín Tanja getur komist fyrst á heimsleikana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir keppir á undan öllum hinu íslenska CrossFit fólkinu af því að hún er skráð til leiks  á undanúrslitamóti  Vesturhluta Norður-Ameríku og keppir í raun undir fána Bandaríkjanna að þessu sinni.
Katrín Tanja Davíðsdóttir keppir á undan öllum hinu íslenska CrossFit fólkinu af því að hún er skráð til leiks  á undanúrslitamóti  Vesturhluta Norður-Ameríku og keppir í raun undir fána Bandaríkjanna að þessu sinni. Instagram/@katrintanja

Katrín Tanja Davíðsdóttir er flogin til Kaliforníu þar sem bíður hennar risastórt verkefni sem er að keppa í undanúrslitamóti fyrir heimsleikana í CrossFit.

Undanúrslitamót vesturhluta Norður-Ameríku fer fram í Pasadena sem er norðaustur af Los Angeles borg.

Keppnin hefst á morgun og stendur yfir fram á sunnudaginn kemur. Eftir það munu tíu efstu konurnar tryggja sér farseðilinn á heimsleikana.

Katrín og Brooks Laich, kærasti hennar, flugu til Los Angeles í upphafi vikunnar eins og sjá mátti á samfélagsmiðlum þeirra.'

Katrín Tanja er flutt frá Íslandi til Idaho fylkis í vesturhluta Bandaríkjanna og til að fá að keppa í undanúrslitamóti nálægt sér þá keppir hún undir bandaríska fánanum en ekki þeim íslenska.

Katrín Tanja getur engu að síðustu orðið fyrsti íslensku keppandinn í fullorðinsflokki til að tryggja sér þátttökurétt á heimsleikunum í haust.

Katrín Tanja komst ekki á síðustu heimsleika eftir að hafa verið með sjö ár í röð. Komist hún til Madison þá verða þetta hennar tíundu heimsleikar á ferlinum.

Um síðustu helgi fór fram undanúrslitamóti austurhluta Norður-Ameríku og Katrín og aðrar sem keppa um helgina hafa væntanlega fylgst vel með gangi mála það. Ekki bara vegna áhuga síns á CrossFit íþróttinni heldur einnig vegna þess að greinarnar á öllum undanúrslitamótum eru þær sömu.

Katrín Tanja og keppinautar hennar vita því nákvæmlega hvað þær eru að fara út í um helgina sem er oft ekki raunin á CrossFit-mótum.

Katrín þarf að bæta sig talsvert frá því í fjórðungsúrslitunum þar sem hún endaði í tuttugasta sæti. Hún hefur hins vegar oftast staðið sig betur í maður á mann keppni í staðinn fyrir að skila æfingum í gegnum netið eins og í tveimur fyrstu hlutum undankeppninnar.

Það gefur okkur ástæðu til bjartsýni á það að Katrín nái að hækka sig um tíu sæti og tryggja sér sæti á heimsleikunum 2023, fyrst Íslendinga í fullorðinsflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×