Ofurkýrin Staka með 14 þúsund lítra af mjólk Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 28. október 2020 20:00 Kýrin Staka, sem er einstakur gripur enda mjólkar hún og mjólkar eigendum sínum til mikillar ánægju. Magnús Hlynur Hreiðarsson
Kýrin Staka hefur verið eigendum sínum mikill happafengur því hún hefur mjólkað á síðustu tólf mánuðum tæplega 14 þúsund lítra af mjólk á meðan hin almenna kýr í landinu mjólkar að meðaltali um 6.500 lítra. Á bænum Gunnbjarnarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi er eitt glæsilegasta fjós landsins með um 210 kúm. Bændur búsins eru þeir Berglind Bjarnadóttir og Arnar Bjarni Eiríksson. Kýrnar hjá þeim mjólka almennt mjög vel en það er þó ein kýr, sem stendur upp úr, hún mjólkar og mjólkar og er afurðahæst allra kúa á Suðurlandi og næst hæst yfir landið með tæplega 14 þúsund lítra á síðustu 12 mánuðum. Kýrin heitir Staka, húfótt og mjög falleg. „Já, þetta er náttúrulega að mörgu leyti einstök kú. Hún er út af kyni, sem við erum búin að eiga svolítið lengi og við höfum leyft okkur að rækta út frá því. Kynbótastarf er háð pólitík en við erum ekki alltaf sammála pólitíkinni sem þar er rekin, þannig að það má segja að hluta til sé þetta afrakstur okkar eigin ræktunar,“ segir Arnar Bjarni. Arnar Bjarni og Berglind Bjarnadóttir, kúabændur í Gunnbjarnarholti.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvað er hún búin að vera að mjólka mikið? „Þetta er búið að vera met ár hjá henni núna, hún er svo sem ekki búin að ljúka mjaltaskeiði en hún fór núna í eitthvað liðlega 14 þúsund lítra og kemur til að fara á þessu mjaltaskeiði einhverjar 15 til 16 þúsund lítra.“ Staka er sex ára gömul og hefur átt þrjá kálfa og er gott dæmi um grip, sem allir kúabændur myndu vilja eiga í fjósinu sínu. „Þetta er bara eins með skepnur eins og mannfólkið, það fer engin á þennan stall nema vera skapríkur og hafa skoðanir á hlutnum, hún er mjög skoðanarík þessi blessaða kýr,“ segir Arnar Bjarni. Á sama tíma og Staka og bændurnir í Gunnbjarnarholti voru heimsóttir bar ein kýrin í fjósinu en árlega fæðast í Gunnbjarnarholti um 300 kálfar. Kálfurinn, sem var kvíga fékk strax nafnið Magnúsína í höfuðið á fréttamanninum, sem var að gera fréttina í Gunnbjarnarholti. Staka er mjög dugleg að fara í mjaltaþjónana í Gunnbjarnarholti en fjórir mjaltaþjónar eru í fjósinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Skeiða- og Gnúpverjahreppur Landbúnaður Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Fleiri fréttir Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Sjá meira