Nökkvi skoraði og Beerschot á toppnum

Nökkvi Þeyr Þórisson varð markakóngur Bestu deildar karla, og besti …
Nökkvi Þeyr Þórisson varð markakóngur Bestu deildar karla, og besti leikmaðurinn, og skorar nú jafnt og þétt í Belgíu. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði sitt fimmta mark fyrir Beerschot í belgísku B-deildinni í knattspyrnu í dag þegar lið hans vann Dender á útivelli, 3:2.

Nökkvi er því orðinn næstmarkahæsti leikmaður liðsins þó hann hafi ekki komið til félagsins frá KA fyrr en fjórar umferðir voru búnar af deildinni. 

Beerschot náði með sigrinum í dag fjögurra stiga forskoti á toppi B-deildarinnar og vann fimmta leikinn í röð. Beveren er fjórum stigum á eftir en spilar síðar í dag og getur minnkað forskotið niður í eitt stig á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert