Enn mælast snarpir skjálftar þótt ekki sé búist við gosi á næstu klukkustundum Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa 4. mars 2021 06:34 Sérfræðingar Veðurstofu Íslands að störfum á Reykjanesskaganum í gær eftir að óróapúlsinn mældist. Vísir/Vilhelm Enn er mikil skjáftavirkni á Reykjanesskaganum en ekki er þó byrjað að gjósa. Nýjustu gögn gefa ekki vísbendingar um að eldgos á Reykjanesskaga sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Ennþá eru þó merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis. Stærsti skjálftinn sem mælst hefur í kvöld var 4,2 að stærð og átti hann upptök sín um tveimur kílómetrum norður af Grindavík, en skjálftinn varð klukkan 19:14. Um 2.500 jarðskjálftar mældust í gær en í heildina hafa mælst hátt í tuttugu þúsund skjálftar síðan hrinan hófst fyrir um viku síðan. Órói og skjálftavirkni minnkaði aðeins um miðja nótt en jókst aftur upp úr klukkan fimm í morgun. Frá því á miðnætti í gær og til miðnættis í dag hafa mælst um 3.500 skjálftar, eða um þúsund fleiri en mældust sólarhringinn þar á undan. Jarðskjálfti af stærð 4.5 mældist kl 08:54 við Fagradalsfjall. Skjálftinn fannst vel á suðvestur horni landsins. Órói...Posted by Veðurstofa Íslands on Thursday, March 4, 2021 Óróapúls, sem gjarnan er undanfari eldgoss, mældist klukkan 14:20 í gær suður af Keili við Litla-Hrút. Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofunni, fór yfir nýjustu upplýsingar í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Að sögn Kristínar er engin merki að finna í nýjustu gögnum um að kvika sé að nálgast yfirborð á Reykjanesi. Aftur á móti er enn óljóst hvort jarðhræringarnar á svæðinu komi til með að líða hjá á næstu dögum eða hvort komi til eldgoss. Er þá hættan á eldgosi liðin hjá eða eru ennþá líkur á að eldgos muni hefjast? „Við sjáum engin merki í gögnunum okkar um að kvikan sé að nálgast yfirborð. Þetta er kaflaskipt virkni og við verðum bara að vera undir allt búin, að þetta verði eitthvað langhlaup, að það taki einhverja daga að líða hjá nú eða endi með eldgosi, við bara vitum það ekki,“ svaraði Kristín. Hér fyrir neðan má sjá vakt Vísis sem hófst í gær þegar óróapúlsinn fór að mælast. Fréttin hefur verið uppfærð.
Stærsti skjálftinn sem mælst hefur í kvöld var 4,2 að stærð og átti hann upptök sín um tveimur kílómetrum norður af Grindavík, en skjálftinn varð klukkan 19:14. Um 2.500 jarðskjálftar mældust í gær en í heildina hafa mælst hátt í tuttugu þúsund skjálftar síðan hrinan hófst fyrir um viku síðan. Órói og skjálftavirkni minnkaði aðeins um miðja nótt en jókst aftur upp úr klukkan fimm í morgun. Frá því á miðnætti í gær og til miðnættis í dag hafa mælst um 3.500 skjálftar, eða um þúsund fleiri en mældust sólarhringinn þar á undan. Jarðskjálfti af stærð 4.5 mældist kl 08:54 við Fagradalsfjall. Skjálftinn fannst vel á suðvestur horni landsins. Órói...Posted by Veðurstofa Íslands on Thursday, March 4, 2021 Óróapúls, sem gjarnan er undanfari eldgoss, mældist klukkan 14:20 í gær suður af Keili við Litla-Hrút. Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofunni, fór yfir nýjustu upplýsingar í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Að sögn Kristínar er engin merki að finna í nýjustu gögnum um að kvika sé að nálgast yfirborð á Reykjanesi. Aftur á móti er enn óljóst hvort jarðhræringarnar á svæðinu komi til með að líða hjá á næstu dögum eða hvort komi til eldgoss. Er þá hættan á eldgosi liðin hjá eða eru ennþá líkur á að eldgos muni hefjast? „Við sjáum engin merki í gögnunum okkar um að kvikan sé að nálgast yfirborð. Þetta er kaflaskipt virkni og við verðum bara að vera undir allt búin, að þetta verði eitthvað langhlaup, að það taki einhverja daga að líða hjá nú eða endi með eldgosi, við bara vitum það ekki,“ svaraði Kristín. Hér fyrir neðan má sjá vakt Vísis sem hófst í gær þegar óróapúlsinn fór að mælast. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Sjá meira