Mikill áhugi á kröftum Arnórs sem hefur farið á kostum Aron Guðmundsson skrifar 23. maí 2023 10:05 Arnór í leik með íslenska landsliðinu Vísir/Getty Næstu vikur hjá Arnóri Sigurðssyni verða fróðlegar. Mikill áhugi er á leikmanninum, sem hefur farið á kostum með IFK Norrköping í Svíþjóð á láni frá rússneska félaginu CSKA Moskvu í Rússlandi.
Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) greindi frá því í gær að erlendir leikmenn sem eru á mála hjá rússneskum og úkraínskum félögum gætu enn á ný, vegna innrásar Rússa í Úkraínu, gert hlé á samningum sínum við umrædd félagslið sín yfir tímabilið 2023/2024. Arnór Sigurðsson er einn þeirra leikmanna sem hefur nýtt sér þetta úrræði FIFA en hann hefur, síðan í júlí árið 2022, verið á láni hjá IFK Norrköping í Svíþjóð þar sem hann hefur slegið í gegn. Forráðamenn IFK Norrköping segjast ætla að gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að reyna halda í Íslendinginn knáa en gera sér þó grein fyrir því að fleiri lið eru um hituna. Arnór hefur verið einn besti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar undanfarið. „Við bjuggumst við þessari ákvörðun FIFA,“ segir Tony Martinsson, íþróttastjóri IFK Norrköping, í samtali við Expressen í Svíþjóð. „Við sjáum hvar við stöndum varðandi Arnór innan nokkurra vikna. Ég get ekki gefið ykkur líkurnar á því að hann verði áfram í prósentum. Það er mikill áhugi á kröftum hans, hann nýtur sín hér hjá okkur og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda í hann.“ Frá 1. júlí geta erlendir leikmenn á samningum hjá rússneskum og úkraínskum knattspyrnufélögum gert hlé á umræddum samningum sínum fram til júní árið 2024. Arnór tjáði sig í samtali við Expressen eftir leik Norrköping í gær. Hann segist vera með fulla einbeitingu á næstu þremur leikjum Norrköping áður en landsleikjahlé tekur við. „Ég nýt hvers leiks með IFK Norrköping og það er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið að snúa aftur hingað. Ég er þakklátur félaginu en hef ekki tekið ákvörðun um framhaldið á þessari stundu.“ Hann viðurkennir að það sé mikill áhugi á kröftum sínum. „Ég hef spilað mikið hérna síðan að ég sneri aftur til Svíþjóðar og það er mikill áhugi. Maður vill spila á hæsta gæðastigi. Ég hef gert það áður og vil gera það aftur. Það væri eitthvað skrýtið ef ég vildi ekki stefna þangað aftur.“ Aðspurður hvort hann hefði dálæti á einhverri ákveðinni deild fremur en annarri hafði Arnór þetta að segja: „Ég hef spilað áður í Serie A á Ítalíu og þekki fótboltann þar vel. Þá horfir maður til Þýskalands og á aðrar stórar deildir. En ég hef einnig talað við forráðamenn IFK Norrköping, sjáum hvað setur.“
Sænski boltinn Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp Fótbolti Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Handbolti Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Handbolti Fleiri fréttir „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Sjá meira