Newcastle bjartsýnt á að fá Lingard, Dele eða Ramsey fyrir gluggalok Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. janúar 2022 22:31 Newcastle vill aðeins leikmenn sem kunna að klappa. EPA Images Það gengur frekar brösuglega hjá Newcastle United að nýta nýtilkomið ríkidæmi sitt en Eddie Howe stefnir á að fá inn fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin. Meðal nafna sem eru orðuð við félagið eru Jesse Lingard, Dele Alli og Aaron Ramsey.
Í frétt The Telegraph um leikmannamál Newcastle kemur fram að liðið sé á höttunum á eftir allt upp að fimm leikmönnum til viðbótar við þá Kieran Trippier og Chris Woods. Newcastle er sem stendur statt í heimalandi eiganda félagsins, Sádi-Arabíu, til að æfa í betra veðri en gengur og gerist í Norður-Englandi. Þó Manchester United eigi enn eftir að samþykkja tilboð Newcastle í Lingard virðist sem líkurnar séu meiri en minni að þau félagaskipti fari í gegn. The club are pushing to sign as many as five players in a hectic final week of the January transfer window | @LukeEdwardsTele— Telegraph Football (@TeleFootball) January 24, 2022 Lingard sjálfur er staddur í Dúbaí þar sem hann er nú við æfingar. Hann bíður svars frá forráðamönnum Man Utd varðandi möguleg félagaskipti. Þó leikmaðurinn verði samningslaus í sumar er ekki talið að Newcastle muni kaupa hann, þess í stað mun félagið fá hann á láni. Newcastle myndi þá borga Man Utd fimm til sex milljónir punda sem og öll laun leikmannsins en þau eru í kringum 80 þúsund pund á viku. Þá er Howe, þjálfari liðsins, einnig að íhuga að reyna fá Dele Alli á láni frá Tottenam Hotspur sem og Aaron Ramsey, leikmann Juventus, til að fríska upp á miðju liðsins. Til að þétta raðirnar aftast er verið að tala við Sevilla varðandi brasilíska miðvörðinn Diego Carlos. Enski miðvörðurinn James Tarkowski er einnig á óskalista Newcastle en talið er nær ómögulegt að Burnley muni selja Newcastle annan lykilmann en bæði lið eru í bullandi fallbaráttu þegar tímabilið á Englandi er rúmlega hálfnað.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sport Uppgjör: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Íslenski boltinn Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Enski boltinn Í beinni: FH - ÍBV | Oddaleikur í Krikanum Handbolti Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Körfubolti Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti Leik lokið: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Körfubolti Fleiri fréttir Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Sjá meira