Sakfelldur fyrir að hjálpa konum að eignast börn Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 4. desember 2022 16:01 Getty Images Danskur karlmaður hefur verið sektaður um andvirði hálfrar milljónar íslenskra króna fyrir að gefa konum sæði sitt svo þær geti eignast barn. Maðurinn eignast brátt sitt 19. barn.
Henrik er 54 ára frá Mið-Jótlandi í Danmörku. Honum finnst föðurhlutverkið dásamlegt og þegar hann átti orðið nokkur börn, þá fór hann að velta því fyrir sér hvernig hann gæti hjálpað öðru fólki, barnlausum pörum að upplifa þessa sömu hamingju. Auglýsti ókeypis sæðisgjöf á netinu Hann opnaði heimasíðu þar sem hann bauð ókeypis sæðisgjöf. Nokkrar konur hafa nú þegar þegið þessa aðstoð og eignast börn með aðstoð Henriks. En það er komið babb í bátinn. Það er andstætt dönskum lögum að gefa sæði sisona milliliðalaust í sprautu. Lögum samkvæmt þarf hver sá sem dreifir sæði sínu að hafa leyfi frá Stofnun um öryggi sjúklinga í Danmörku. Og hún hafði alls ekki gefið Henrik leyfi til þess að gefa vandalausum sæði sitt. Lögunum er ætlað að tryggja að sæðisgjafar dreifi ekki arfgengum sjúkdómum, að löglegar skyldur sæðisgjafa gagnvart barni séu á hreinu og að vitað sé hversu mörg börn hver einstakur sæðisgjafi hafi eignast. Þessi skilyrði uppfylla sæðisbankar og aðrar stofnanir af þeim meiði, en það gerir Henrik hins vegar ekki. Þess vegna var hann dreginn fyrir dóm. Afhenti sæðið í sprautu Ef Henrik hefði farið hina hefðbundnu leið og haft samræði við konurnar, þá hefði löggjafinn ekki getað skipt sér af málinu. En þar sem Henrik afhenti viðkomandi konum ferskt sæði sitt í sprautu þá var hann þar með orðinn sekur um lögbrot. Henrik segir að hefðu konurnar verið gagnkynhneigðar þá hefði vafalaust verið þægilegra og auðveldari leið að hafa samræði til að geta börnin, en þar sem þessar konur eru allar samkynhneigðar þá kom það illa til greina. Hann segir að það eina sem vaki fyrir honum sé að gera öðru fólki greiða, veita þeim þá hamingju að eignast börn og sjálfur upplifa þá gleði að hafa fætt fleiri börn í þennan heim. Konurnar sem hafa þegið aðstoð Henriks, hafa sumar hverjar komið fram í fjölmiðlum og lýst yfir undrun sinni á því að Henrik skuli sakfelldur fyrir að hjálpa öðru fólki. 18 barna faðir í Danmörku Hann var í síðustu viku dæmdur til að greiða 25.000 krónur danskar í sekt, en ella sæta 2ja vikna fangelsi. Hann var fundinn sekur um að hafa hjálpað 5 konum að eignast börn. Sjálfur segist hann vera orðinn 18 barna faðir og að það 19. sé á leiðinni.
Danmörk Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Erlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira