Loo aftur á byrjunarreit

Loo Eng Wah við kúluhús sín og hjólhýsi að Leyni …
Loo Eng Wah við kúluhús sín og hjólhýsi að Leyni 2 og 3. mbl.is/Hari

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur öðru sinni fellt úr gildi þá ákvörðun Skipulagsstofnunar að uppbygging malasíska athafnamannsins Loo Eng Wah að Leyni 2 og 3 í Landsveit skuli ekki sæta umhverfismati.

Eins og Morgunblaðið hefur greint frá hefur Loo unnið að uppbyggingu á svæðinu frá árinu 2019. Þar á að reisa allt að 200 fermetra þjónustuhús fyrir tjaldsvæði, allt að 800 fermetra byggingu fyrir veitingastað, verslun, móttöku og fleira og allt að 45 gestahús á einni hæð, sum þeirra 60 fermetra að stærð og kúluhús við hvert og eitt.

Áform Loos hafa hins vegar mætt harðri andstöðu landeigenda í nágrenni Leynis. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert