Halmstad, félag Gísla Eyjólfssonar og Birnis Snæs Ingasonar, er í öðru sæti í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir góðan útisigur á Värnamo í dag.
Halmstad komst tveimur mörkum yfir eftir einungis sex mínútna leik í dag. Þriðja markið leit dagsins ljós á fertugustu og fjórðu mínútu.
Gísli kom af varamannabekknum á 69. mínútu en Birnir sat allan tímann á bekknum.