Ráðherra segir koma til greina að setja lög á verkfall flugvirkja Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 20. nóvember 2020 20:45 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir koma til greina að binda endi á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar með lögum. Vísir/Vilhelm
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir það koma til greina að lög verði sett á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar til að binda endi á það. Landhelgisgæslan hefur aðeins eina þyrlu til afnota eins og stendur og liggur fyrir að hún þurfi að fara í viðhald í næstu viku. Verði verkfallinu ekki lokið mun Gæslan ekki hafa neina þyrlu til afnota. „Þetta er öryggismál almennings, að Landhelgisgæslan geti sinnt sínu öryggishlutverki og ekki sjófarenda. Það öryggi má ekki tefla í tvísýnu,“ sagði Áslaug Arna í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að staðan væri grafalvarleg. Aðspurður hvort hann teldi nauðsynlegt að stoppa verkfallið með lögum ef ekki næðust samningar áður en síðasta starfhæfa þyrlan færi í reglubundna skoðun um miðja næstu viku sagði hann „það er ekki mitt að svara því.“ Áslaug Arna sagði í dag að það kæmi til greina að lög verði sett til að binda endi á verkfallið. „Það er auðvitað ein af leiðunum sem hægt er að fara og ég mun auðvitað skoða alla möguleika en bind enn þá vonir við það að samningar náist,“ sagði Áslaug. Hún segist enn binda vonir við það að samningar náist, þó að svo virðist vera að hvorug hlið málsins ætli að haggast. „Það er verið að bjóða flugvirkjum sömu launahækkanir og aðrir opinberir starfsmenn hafa fengið. Ég bind miklar vonir við það að það verði hægt að tryggja öryggi fólks og Landhelgisgæslan sinni því hlutverki. „ Ertu tilbúin að leggja fram þetta frumvarp? Er það í vinnslu hjá þér? „Ég mun skoða það mjög alvarlega ef þetta verður enn þá staðan í næstu viku þegar öryggi fólks verður teflt í tvísýnu með þessum verkföllum.“ Hún segir stöðuna ekki orðna þannig nú þegar. Enn sé þyrla Landhelgisgæslunni til taks. Hún þurfi hins vegar að vera til taks öllum stundum og því sé búið að fella niður allar æfingar og fleira svo hægt sé að bregðast við ef eitthvað kemur upp á. „Ég tala reglulega við Landhelgisgæsluna og Georg þar á meðal og það er lang mikilvægast að Landhelgisgæslan geti sinnt þessum öryggis- og almannavörnum og við tölum reglulega saman og munum halda því áfram,“ sagði Áslaug Arna.
Landhelgisgæslan Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Kjaramál Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Segir stöðuna hjá Landhelgisgæslunni grafalvarlega Svo gæti farið að engin björgunarþyrla verði starfhæf hjá Landhelgisgæslunni um miðja næstu viku ef ekki næst að semja í kjaradeilu hluta flugvirkja Gæslunnar. 19. nóvember 2020 18:51 „Neyðarástand yfirvofandi“ hjá Landhelgisgæslunni Landhelgisgæslan segir neyðarástand yfirvofandi vegna verkfalls flugvirkja. Nú blasi við að þyrlufloti Landhelgisgæslunnar stöðvist á næstu dögum, í síðasta lagi um miðja næstu viku. 19. nóvember 2020 16:20 Segir verkfallið hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu dragist það á langinn Ótímabundið verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni er skollið á. Forstjóri Landhelgisgæslunnar kveðst vakinn og sofinn yfir málinu og reynir að takmarka tjónið eins og kostur er. Dragist verkfallið á langinn muni það hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu. 6. nóvember 2020 13:13 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Innlent Fleiri fréttir Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Sjá meira
Segir stöðuna hjá Landhelgisgæslunni grafalvarlega Svo gæti farið að engin björgunarþyrla verði starfhæf hjá Landhelgisgæslunni um miðja næstu viku ef ekki næst að semja í kjaradeilu hluta flugvirkja Gæslunnar. 19. nóvember 2020 18:51
„Neyðarástand yfirvofandi“ hjá Landhelgisgæslunni Landhelgisgæslan segir neyðarástand yfirvofandi vegna verkfalls flugvirkja. Nú blasi við að þyrlufloti Landhelgisgæslunnar stöðvist á næstu dögum, í síðasta lagi um miðja næstu viku. 19. nóvember 2020 16:20
Segir verkfallið hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu dragist það á langinn Ótímabundið verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni er skollið á. Forstjóri Landhelgisgæslunnar kveðst vakinn og sofinn yfir málinu og reynir að takmarka tjónið eins og kostur er. Dragist verkfallið á langinn muni það hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu. 6. nóvember 2020 13:13