Leikarinn og tónlistarmaðurinn Jamie Foxx greindi frá láti systur sinnar, DeOndru Dixon, á Instagram. Foxx var mjög náinn systur sinni sem var með Downs-heilkenni og aðeins 36 ára þegar hún lést. Dixon var útnefnd sérstakur sendiherra Global Down Syndrome Foundation árið 2011.
„Hjarta mitt er í molum,“ hóf Foxx einlæga færslu á Instagram á. Sagði hann systur sína hafa farið yfir í annan heim. Hann vildi ekki segja látin þar sem hann sagði hana halda áfram að lifa. Hann sagði systur sína hafa vera mikinn gleðigjafa sem fannst mjög gaman að dansa. Systir Foxx dansaði í tónlistarmyndbandi hans við lagið Blame it. Hún dansaði einnig á Grammy-verðlaununum.
„Ég veit að hún er í himnaríki núna að dansa með vængjum ... Þrátt fyrir að sársauki minn sé ótrúlegur brosi ég þegar ég hugsa um allar minningarnar sem hún skildi eftir,“ skrifaði Foxx. „Fjölskylda okkar er mölbrotin en við munum púsla brotunum saman með ást þinni,“ skrifaði Foxx um systur sína og bað fólk að biðja fyrir fjölskyldu sinni.
View this post on InstagramA post shared by Jamie Foxx (@iamjamiefoxx) on Oct 26, 2020 at 1:55pm PDT